Page 1 of 1

Brotin olíupanna

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 17:09
by siggir
Ég lenti í slæmu óhappi áðan. Ég var að keyra í mestu makindum á Eyrarveginum á Selfossi þegar ég keyri yfir stærðarinnar hnullung sem var á miðjum veginum. Hann hefur greinilega dottið af palli hjá einhverjum vörubílnum en það er verið að byggja þarna rétt hjá. Steinninn birtist skyndilega undan bílnum fyrir framan mig og ég gat ekkert gert nema að keyra yfir hann. Ég hélt það nú að það hlyti að sleppa en nei, steinninn skellur í pönnunni og brýtur úr henni stórt stykki. Ég stoppaði strax og hringdi í tengdaföður minn bifvélavirkjann og hann kom og við drógum bílinn inn á verkstæði. Ég fór svo strax út og tók myndir af öllu saman og hirti klettinn. Pannan er illa brotin en sem betur fer fór ekkert annað.

Og nú stend ég eftir með tvær spurningar:
1. Er bílstjórinn/verktakinn/bærinn ekki bótaskyldur útaf einhverju svona (vörubílstjórar eru ábyrgir fyrir því að tryggja farminn)
2. Veit einhver um olíupönnu sem ég get fengið? (E30 325i)

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 17:21
by Angelic0-
Ferð á bæjarskrifstofu þíns bæjar og spyrð hvaða vörubílar eru að aka þarna um... ferð með grjótið á lögreglustöð og brotin úr olíupönnnunni og sýnir þeim hvar þetta gerðist !

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 19:56
by Twincam
Aldrei að hrófla við "glæpsvettvangi" .. heldur hringja beint í lögregluna og láta hana sjá um að gera skýrslu og taka myndir af slysstað.. :?

PostPosted: Mon 27. Feb 2006 20:06
by siggir
Twincam wrote:Aldrei að hrófla við "glæpsvettvangi" .. heldur hringja beint í lögregluna og láta hana sjá um að gera skýrslu og taka myndir af slysstað.. :?


Ég fattaði það eftirá, hugsaði bara ekki alla leið strax. :(

PostPosted: Fri 03. Mar 2006 13:37
by siggir
Passa pönnur úr m20b20 í b25?

PostPosted: Fri 03. Mar 2006 14:12
by gstuning
siggir wrote:Passa pönnur úr m20b20 í b25?


já, sama pannan

PostPosted: Fri 03. Mar 2006 20:15
by aronjarl
:? leiðinlegt að heyra!

Þú getur fengið pönnur úr

325i-320i-323i 86-91

520i-525i 86-91


þessar vélar heita M20 og þær eru alveg eins í útliti og þín vél.

Til að losa þessa pönnu undan þarftu að losa mótorpúðana við boddy.
lyfta vélinni eins upp og þú getur losa allar skrúfur og losa svo olíu pickupinn það eru 3 boltar til að ná pönnunni undan það er öxull fra´olíudælu sem tengir pick-upp inn..


passa sig svo pannan á þessum bíl er 10cm frá jörðu á 14''uni :x


gangi þér vel..!"

PostPosted: Fri 03. Mar 2006 20:44
by siggir
aronjarl wrote:passa sig svo pannan á þessum bíl er 10cm frá jörðu á 14''uni :x


Maður lærir af reynslunni ;)