Ég lenti í slæmu óhappi áðan. Ég var að keyra í mestu makindum á Eyrarveginum á Selfossi þegar ég keyri yfir stærðarinnar hnullung sem var á miðjum veginum. Hann hefur greinilega dottið af palli hjá einhverjum vörubílnum en það er verið að byggja þarna rétt hjá. Steinninn birtist skyndilega undan bílnum fyrir framan mig og ég gat ekkert gert nema að keyra yfir hann. Ég hélt það nú að það hlyti að sleppa en nei, steinninn skellur í pönnunni og brýtur úr henni stórt stykki. Ég stoppaði strax og hringdi í tengdaföður minn bifvélavirkjann og hann kom og við drógum bílinn inn á verkstæði. Ég fór svo strax út og tók myndir af öllu saman og hirti klettinn. Pannan er illa brotin en sem betur fer fór ekkert annað.
Og nú stend ég eftir með tvær spurningar:
1. Er bílstjórinn/verktakinn/bærinn ekki bótaskyldur útaf einhverju svona (vörubílstjórar eru ábyrgir fyrir því að tryggja farminn)
2. Veit einhver um olíupönnu sem ég get fengið? (E30 325i)


