Mælaborðsvandamál og miðstöð í rugli í E34

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Mælaborðsvandamál og miðstöð í rugli í E34

Postby Nói » Thu 23. Feb 2006 00:36

Svo er mál í veksti að hraðamælirinn og snúningsmælirinn detta út svona inná milli og bara eru í einhverju rugli.
Kicka alltaf inn dag og dag, stundum bara annar, algengara er að hraðamælirinn virkar ekki.

Hefur einhver hugmynd hvað er að þessu ?=)

Svo er annað, með miðstöðina, ég fæ hita úr henni uppá framrúðuna og fæturnar, en ekki útum farþega og ökumansjúnitinu.

Það er allt í bili.
Þetta er 520 90 árgerð E34
Nói
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 11
Joined: Thu 23. Feb 2006 00:29

Re: Mælaborðsvandamál og miðstöð í rugli í E34

Postby gstuning » Thu 23. Feb 2006 08:49

Nói wrote:Svo er mál í veksti að hraðamælirinn og snúningsmælirinn detta út svona inná milli og bara eru í einhverju rugli.
Kicka alltaf inn dag og dag, stundum bara annar, algengara er að hraðamælirinn virkar ekki.

Hefur einhver hugmynd hvað er að þessu ?=)

Svo er annað, með miðstöðina, ég fæ hita úr henni uppá framrúðuna og fæturnar, en ekki útum farþega og ökumansjúnitinu.

Það er allt í bili.
Þetta er 520 90 árgerð E34


Þarft að athuga ground tengingar backvið mælaborðið
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby Bjarki » Thu 23. Feb 2006 16:13

mælaborðið þarf að laga og skipta um þétta í því, mjög algeng bilun.
http://www.bmwe34.net/e34main/maintenan ... citors.htm

Það getur verið að það eigi bara að koma kalt loft þarna, er þannig í sumum miðstöðvum. Stundum er líka stillir fyrir loftið sem kemur í miðjunni fyrir farþega framí kalt/heitt.
Kíktu í manual'inn (slide control for fresh air inlet) stendur oft um þessa rist.
Annars bilaður stepper-motor.
Fer eiginlega allt eftir því hvað miðstöð þú ert með.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Nói » Thu 23. Feb 2006 18:13

Takk, ég skoða þetta með þéttana =D

það eru 2 hitatakkar í bílnum, þarf kanski að rífa þetta í sundur og skoða hægri takkann eihvað =)
Nói
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 11
Joined: Thu 23. Feb 2006 00:29

Postby Bjarki » Thu 23. Feb 2006 19:25

Nói wrote:Takk, ég skoða þetta með þéttana =D

það eru 2 hitatakkar í bílnum, þarf kanski að rífa þetta í sundur og skoða hægri takkann eihvað =)


ólíklega takkinn ef það kemur bara hiti öðru megin þá er það segulrofi sem stýrir því hversu mikið vatn fer inn á miðstöðvarelementið. Mögulega er annar rofinn bilaður. Algengara er þó að það komi bara heitt loft þegar þessir segulrofar bila þ.e. að þeir haldist opnir en lokist ekki.
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 16 guests