Page 1 of 1

Sjálfskipting, "sealed for life " sniðugt??

PostPosted: Wed 22. Feb 2006 15:06
by Þórður Helgason
Ég var að skoða gögn um minn bíl og sé, skv. win. númeri að skiptingin í honum er "sealed for life", þeas aldrei þarf að athuga með vökvann.

Er þetta ekki rétt skilið hjá mér? Hefur þetta reynst í lagi?
Minns er árg 96 og ekinn 130 þús, ég hef svosem ekki sérstakar áhyggjur en þetta vakti hjá mér spurningar um reynsluna af þessu fyrirkomulagi.

Er kannski eitthvað annað sem þarf að gera í staðinn, t.d. síuskipti?

Einhver með reynslu af þessu?

PostPosted: Wed 22. Feb 2006 15:26
by Logi
Menn hafa verið að skipta um olíur á þessu... Mér skilst að það hafi verið gert bæði í B&L og TB.

Ég myndi hiklaust láta skipta um olíu ef ég væri í þínum sporum!