Page 1 of 1

Skottið lokast ekki! (E34)

PostPosted: Wed 15. Feb 2006 20:38
by Danni
Ég opnaði skottið til að ná í dót úr því áðan og það hefur ekki lokast síðan. Sama hvað ég gerði, er búinn að fikta í læsingunni, prófa að skella, það bara lokast ekki. Læsingin festist ekki uppi.

Hvernig reddar maður þessu? bara skipta um lásinn eða?

Re: Skottið lokast ekki! (E34)

PostPosted: Wed 15. Feb 2006 20:53
by Helgi M
Kannski bara prufa að smyrja krækjuna sem læsist utan um "krókinn" í boddýinu og reyna að þjösnast á henni til að fá þetta laust, en annars kann ég ekki elstu trikkinn í bókinni :)

PostPosted: Wed 15. Feb 2006 21:13
by Danni
Krækjan er nefnilega laus. Ég er búinn að prófa að ýta henni alveg eins langt inn og ég get og hún læsist ekki.

PostPosted: Wed 15. Feb 2006 21:20
by 98.OKT
Þetta skeði hjá mér um daginn, ég tók bara mottuna í burtu frá lásnum og þar bakvið var einhver pinni sem ég ýtti til hliðar eða eitthhvað og þá lagaðist þetta, og hefur ekki klikkað síðan :wink:

PostPosted: Thu 16. Feb 2006 08:35
by Danni
ég er nú bara í stökustu vandræðum með að taka inréttinguna frá, svo hræddur um að skemma eitthvað :oops:

PostPosted: Thu 16. Feb 2006 10:04
by saemi
Krókurinn er bara laus væntanlega. Þarft bara að herða á boltunum sem festa hann.

PostPosted: Thu 16. Feb 2006 17:10
by Danni
nopes. Læsingin sjálf læsist ekki, sama hvað. Það fyrsta sem á athugaði var krókurinn!

PostPosted: Thu 16. Feb 2006 17:39
by 98.OKT
Þetta er nánast pottþétt þetta sem ég benti þér á, þetta lýsir sér nákvæmlega eins. Það tók mig ca. þrjár mínútur að gera við þetta með því að taka frá klæðninguna og festa hana aftur :wink: