Jamm, ég er í einhverju veseni með bílinn hjá mér.
325 E36 eins og sumir vita kannski en allavega ég var úti áðan og keyrði frekar gróft, gaf vel í (sammt auðvitað aldrei yfir löglegum hraða) en eftir smá tíma í svona keyrslu er eins og bíllinn sé að missa kraft, hætti að gefa í eins og hann ætti og hættir næstum að gefa inn þó svo að ég stígi benzínið í botn.. ég stoppaði bara bílinn og drap á honum í smá stund og þetta virtist vera farið en veit einhver hvað gæti hugsamlega verið að?


