Page 1 of 1

Setja kort í innbyggðan armrest síma....?

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 20:45
by Þórður Helgason
Ég er að glíma við að ræsa símann í mínum bíl.
Ég sting kortinu í haldarann undir símtólinu.
Veit einhver fyrir víst hvort snertlarnir á kortinu eiga að snúa upp eða niður?

Og hvort eitthvert mál sé að fá þetta til að virka?

Ég stakk OG Vodafone korti í minn áðan og hann var ekki að viðurkenna það, gaf bara check card.
Hann hefur verð notaður á Ísl. áður og er ekki innfl. frá USA.

Þórður H.

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 23:43
by saemi
skoðaðu bara eldri þræði hérna varðandi þetta. Farðu bara í search og þú ættir að finna þetta.

Þú þarft að setja korið í aftur í skotti

PostPosted: Tue 07. Feb 2006 23:44
by Angelic0-
saemi wrote:skoðaðu bara eldri þræði hérna varðandi þetta. Farðu bara í search og þú ættir að finna þetta.

Þú þarft að setja korið í aftur í skotti


Kortið fer undir símann í mínum E39 !

PostPosted: Wed 08. Feb 2006 02:02
by Valdi-
Opnaðu skottið, taktu niður hólfið vinstra megin (þar sem magasínið sést á myndinni) Image
Þar efst uppi ætti að vera einskonar módem og áttu að geta rennt simkortinu þar inn. Þetta tekur ekki nema 10 sek.
Ég persónulega hef aldrei séð neinn setja kort undir símann sjálfan og það hefur virkað, en já, þetta er þarna af einhverjum ástæðum ;)

*edit

Simcardið verður síðan af sjálfsögðu að líta svona út, þeas. það má ekki vera búið að brjóta littla kortið úr ;)
Image

kortið komið á sinn stað.

PostPosted: Wed 08. Feb 2006 19:14
by Þórður Helgason
Takk þetta er komið. Bæði er hægt að setja kortið undir símtólið milli sætanna, (virkar samt ekki) og troða því í erfiðri aðstöðu aftaní stöðina sjálfa aftur í skotti, utan við klæðningu.

Hringdi í Sæma, sem er á jafnungum bíl og minn, og hann leiðbeindi mér. Aldrei hefði mér dottið jafnasnalegur staður og sá sem kortið er sett á.

Svo virkar þetta snilldarlega, nafn þess sem hringir kemur í mælaborðinu og allt gert gegnum stýrið.

Ég er bara ánægður með bílinn, er búinn að hafa hann í 5 daga. Er að leita að ástæðu til þess að aka 1000 km um helgina.
ÞH

Re: kortið komið á sinn stað.

PostPosted: Wed 08. Feb 2006 23:27
by pallorri
Þórður Helgason wrote:Ég er bara ánægður með bílinn, er búinn að hafa hann í 5 daga. Er að leita að ástæðu til þess að aka 1000 km um helgina.
ÞH


Þarft enga ástæðu til þess að keyra ;)
Til hamingju með bílinn annars!