Page 1 of 2

stýrisdælu hljóð...

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 22:57
by noyan
Er með e65 745 og vildi spyrja ykkur um eitt...þegar bíllinn er í lausagangi og lagt er á stýrið þá kemur eins konar dæluhljóð(ekki eðlilegt hljóð) þetta hljóð heyrist bæði þegar lagt er á stýrið til hægri og vinstri, bíllinn er samt mjög léttur í stýri og ekkert vesen. Vitið þið hvaða hljóð þetta getur verið, gæti þetta stafað af því að það vanti olíu á stýrisdæluna? hvaða olía er notuð á stýrisdælu?

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 00:08
by anger
þetta á að vera vinstra megin i huddinu er það ekki?

þa lekur stýrisdælan eða hleðsluvökvinn,

prófaðu að fylla hólfið sem stýrisvökvinn á að vera á, allveg upp í topp þangað til að vökvinn er kominn uppi sigtina og prófaðu hvort hljóðið er ekki farið þá


allavega held eg það þvi eg lenti i þessu sjalfur með 750

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 00:19
by íbbi_
e32 750 er ekki e65 745, ef ég væri þú og með bíl af þessu tagi myndi ég hringja í B&L og fá ráðleggingar þaðan

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 00:24
by noyan
íbbi_ wrote:e32 750 er ekki e65 745, ef ég væri þú og með bíl af þessu tagi myndi ég hringja í B&L og fá ráðleggingar þaðan


já ætlaði að gera það í dag en var bara of seinn það var búið að loka, renni við á morgun og ath hvort að þeir séu ekki að vinna á verkstæðinu.

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 03:30
by anger
íbbi_ wrote:e32 750 er ekki e65 745, ef ég væri þú og með bíl af þessu tagi myndi ég hringja í B&L og fá ráðleggingar þaðan


dÖÖ eg var ekkert að fullyrða neitt, eg var bara að segja hvað eg held í þessu og það er ekkert ólíklegt að það sé stýrisvökvi og hleðslujafnari í e65 :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock:

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 11:37
by noyan
Þetta er komið í lag, vantaði vökva.

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 13:00
by anger
in yo FACE ibbi _ :D

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 13:19
by Taxi
Hlýtur samt að vera einhver ástæða fyrir því að vanti á vökvastýrið, þetta er ekki eitthvað sem gufar bara upp án tilefnis ???

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 13:35
by Tommi Camaro
anger wrote:in yo FACE ibbi _ :D

hann er nú bara á madza gefið honum séns

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 14:47
by íbbi_
ó ó æ nei þú hittir á viðkvæman stað tommi hjálpi mér allir heilagir greyjið ég, hvernig í andskotanum kemur það málinu við að ég eigi mözdu?
og það er ekkert face neitt anger, við erum að tala um mjög dýran og fullkomin bíl hérna og ef ég sjálfur væri með hann í höndunum myndi ég allavegana ráðfæra mig við B&L þegar eitthvað er ekki eins og það á að vera, það er svo líka spurningin, hvað varð af vökvanum? lekur bíllin vökva?

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 16:15
by anger
lol hvað gæti svo sem skeð að prófa að setja meiri stýrisvökva á bilinn ?

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 19:38
by Tommi Camaro
anger wrote:lol hvað gæti svo sem skeð að prófa að setja meiri stýrisvökva á bilinn ?


æj vertu ekki að væla ívar, þetta var bara svo heimskulega svarað frá þér að hringja í bogl til að fá að vita hvað á að gera ef það vantar stýrisvöka á bílinn

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 20:51
by Stanky
Þetta hljóð var í mínum bíl ... reyndar bara E30.

En það sem var eiginlega vesenið var, að dælan var bara ónýt og ég lét skipta um hana. :)

Gunni GSTuning sagði mér að kaupa eitthvað rebuild kit hjá TB í þessar dælur, en ég gerði það ekki, enda fékk ég glæ nýja dælu í bílinn minn á góðu verði, þannig að það var bara gert.

En mér var sagt (og það meikar nokkurnveginn sense) að dælan skemmist ekki nema forðabúrið tæmist, þá reynir hún að dæla upp olíu sem er ekki til staðar. :P


kv,
haukur

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 23:33
by noyan
Takk fyrir svörin strákar, ég ætlaði nú ekki að starta einhverju rifrildi..... en bíllinn fer í tjékk hjá B og L á næstu dögum....þetta er fáránlega gott eintak einn eigandi og þjónustubók. Kem með myndir ofl. þegar hann er komin á sumarfelgur.

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 23:46
by Benzari
Til hamingju með það :burnout:

Hvert fór gamli silfurrefurinn ?