Page 1 of 1

Varðandi tjöru og þrif

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 19:55
by gunnar
Ein pæling, menn hafa verið að segja að brútus sé algert eyði í svona tjöru drullu. Hvar fæst það ?

Eins með þetta hard wax, hvernig notiði það, kaupiði þetta bara í spraybrúsum, sprayið á bílinn og leyfið því að standa ? þvo svo bara eftir.

Annað sem ég var að pæla, þegar þið eruð búnir að spreyja tjöruhreinsi yfir bílinnn, nuddiði það eitthvað eða látið bara liggja og svo háþrýstigræja yfir það ?

8)

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 20:18
by bimmer
Ég byrja á að bleyta bílinn vel, spreyja síðan Sám2000 og læt hann liggja í nokkrar mínútur. Fer síðan yfir með svampi og rennandi vatni til að ná tjörucrappinu af. Svo smúlað með vatni á eftir.

Er ekki að nudda af ef það er mikil tjara sem fer ekki í fyrstu umferð. Set frekar tjöruhreinsi aftur og leyfi honum að vinna.

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 20:24
by gunnar
Ertu með sér svamp þá til að nota á tjöruna, eða fer engin tjara á svampinn..

Hvernig eru þessi Teflon bón, þarf að fara að bóna jimnyinn greyið hefur ekkert fengið neitt þrif 8)

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 20:38
by Jss
Ég set yfirleitt bara tjöruhreinsinn á, leyfi honum aðeins að liggja og háþrýstiþvæ svo af, endurtek ef þarf. ;)

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 20:46
by bimmer
gunnar wrote:Ertu með sér svamp þá til að nota á tjöruna, eða fer engin tjara á svampinn..

Hvernig eru þessi Teflon bón, þarf að fara að bóna jimnyinn greyið hefur ekkert fengið neitt þrif 8)


Er með sér svamp fyrir tjöruþvott sem ég síðan þvæ vel og vandlega með tjöruhreinsi á eftir.

Er ekki nógu vel að mér í bóndóti.

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 22:08
by gstuning
Tjöruhreinsa eins og hægt er með sám eða einhverju álíka,

SONAX er svo #1 til að ná tjöru af,

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 00:36
by basten
gstuning wrote:Tjöruhreinsa eins og hægt er með sám eða einhverju álíka,

SONAX er svo #1 til að ná tjöru af,


SONAX-bón er svo líka snilld til að ná harðri drullu af krómstútum!

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 12:48
by Halli Smil3y
basten wrote:
gstuning wrote:Tjöruhreinsa eins og hægt er með sám eða einhverju álíka,

SONAX er svo #1 til að ná tjöru af,


SONAX-bón er svo líka snilld til að ná harðri drullu af krómstútum!


Ég var einmitt að þrífa alla tjöru og stífbóna á mánudaginn, svo eftir allt klappið þá sá ég glitta í eitthvað svart á krómaða pústinu, sirka 2cm lag af sora og drullu ! Var búin að klára tjöruhreinsinn, fer í þetta á eftir !

PostPosted: Fri 03. Feb 2006 12:52
by fart
vil benda mönnum á að prufa hard-core tjöruhreinsir..

1047 frá Olís.

Öflugur tjöruhreinsir

PostPosted: Sat 04. Feb 2006 09:07
by Ívar/320i
fart wrote:vil benda mönnum á að prufa hard-core tjöruhreinsir..

1047 frá Olís.


Aha!! sammála en vil þó deila með ykkur að ég blanda saman 10:47 Olíuhreinsi frá Olís og Steinolíu, Hlutföllin skulu vera þessi: Olíuhreinsir 1 lítri Steinolía 2 lítrar. Set þetta á ,,úðakönnu" (svona stóran dunk með pumpu, ekki ósvipaður og notaður er við eitrun garðagróðurs) Þessi blanda hefur reynst mér lang best og sérstaklega í svona ,,ótíð" eins og verið hefur í vetur!