Page 1 of 1

Dísel problem hjá kunningja - 318tds

PostPosted: Wed 01. Feb 2006 21:40
by bebecar
Góður vinur minn fór og sótti sér bíl til DE, hann er búsettur í Árósum og var að fá bílinn á númer í gær en er að horfast í augu við einhver vandræði.

Hann fékk semsagt bílinn á númer í gær og er búin að keyra um 600 km síðan þá. Málið er að bíllinn virðist "eyða" óskaplega miklu af olíu, en aðeins í langkeyrslu. Hann setti tvo lítra á hann í gær og hann kláraði það á 400 km ferð!!! En virtist ekki hreyfa hana eftir 200 km innanbæjar.

Það er engin blár reykur eða neitt slíkt, bíllinn flaug í gegnum skoðun, og stóðst mengunarvarnapróf. Hann er með þjónustubók og er mjög vel með farinn og ekki mikið keyrður (180 þús ef ég man rétt, 1995 módel)....

Hafið þið einhverja hugmynd um hvað gæti verið að?

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 15:12
by bebecar
Hmmm... veit engin neitt um dísel :D

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 16:04
by Angelic0-
Rifin dísa ? (spíssi)

Ananrs einhver vanstilling á olíuverkinu.... eina sem að mér dettur í hug :P

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 20:54
by O.Johnson
Angelic0- wrote:Rifin dísa ? (spíssi)

Ananrs einhver vanstilling á olíuverkinu.... eina sem að mér dettur í hug :P

Rifin dísa hefur ekkert með það að gera að hann sé að gleipa olíu.

Ef hann er ekki að brenna olíunni,,, þá dettur mér helst í hug að hann sé bara að gubba
henni af sér einhverstaðar. Prófaðu að skoða kælivatnið, gætir verið heddpakkning.

Einngi gæti verið að hann sé að sulla eitthvað hjá eða í túrbínunni.
Opnaðu lofthosu eftir túrbínuna inn á vél, er allt olíublautt að inna.
Gæti líka að olían fari bara út í pústið í túrbínunni.

Gæti líka verið pakkdós eða pakkning einhverstaðar, bara leita í húddinu eftir smiti,
muna líka eftir aftarisveifaráspakkdósinni, þá ætti smitið að vera í kringum
gatið neðan á kúplingshúsinu.

PostPosted: Thu 02. Feb 2006 21:00
by bebecar
O.Johnson wrote:

kærar þakkir - ég bendi honum á þetta!