Page 1 of 2

Vesen að skipta um drif

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 16:14
by Danni
Jæja vandamálið mitt er það að gaur sem kom og ætlaði að "hjálpa" eyðilagði einn boltann sem heldur öðrum öxlinum við drifið. Vorum búnir að losa hinn öxulinn með minni aðferð (halda dekkinu kjuru og sá sem var á skrallinu kippti fast í það þangað til boltinn losnaði) svo hringdi síminn minn og ég fór í hinn endan að tala og kom aftur og þá var asninn kominn með rör sem er hærra en bíllinn sjálfur og notaði það sem átaksskapt og byrjaði á að skemma boltann smá, hélt að hann hefði losaði hann og snéri bara meira þartil boltinn var orðinn alveg hringlaga að innan.

Við komum ekki wisegrip töng að boltanum og vitum bara ekkert hvernig við eigum að losa hann núna! Any ideas?

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 16:20
by Geirinn
Hehe, þetta gæti orðið mjög leiðinlegt.

Slípirokkur og bora rest úr ? :cry:

Hvað segið þið hinir ? :roll:

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 16:25
by Jón Ragnar
Hita með gasi?

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 17:14
by íbbi_
gas&súr, bara passa að hitta ekki bensíntankinn 8)

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 19:14
by Danni
hmmm nú hef ég aldrei notað gas til að losa bolta... en hvernig geriri maður það? bara gas á boltann og svo reyna að losa? það er reyndar ekkert eftir af boltanum til þess að reyna að losa með.

Búinn hugsa þetta með slípirokkinn en sé ekki hvernig það ætti að ganga upp... kem ekki slípirokknum að og ef ég kæmi honum að þá kæmi ég ekki borvél nógu vel að til að geta gert þetta almennilega. Pústið er nefnilega fyrir.

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 19:16
by Djofullinn
Er ekki bara málið að redda sér dremel með lítilli skurðarskífu?
Skiptir engu þó boltinn sé ennþá fastur í drifinu þar sem þú ert hvort eð er að taka það úr ;) Síðan getur þú tekið restina af boltanum úr þegar drifið er komið úr

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 19:26
by Svezel
það er ekki svo gott að komast að boltanum til að saga með slípirokk nema að losa subframe'ið niður og eitthvað vesen

ég myndi reyna að skera boltann, það má dunda sér að losa boltann seinna þegar drifið er komið niður, gæti samt verið smá maus að ná öxlinum af með boltann inn í flangsinum

annars er besta lausnin að losa þessa bolta að fá sér sexkannt og wedge'a hann með skiptilykli, gluða vel af wd40 á boltana og svo losa

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 20:05
by íbbi_
ef þú hitar þetta þá glóðhitaru boltan og losar hann með wicegrip,

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 20:44
by GK
notaðu bara röratöng það virkar vel hef lent í sama en bara á e30 bíl, smella röratöngina utan um boltan og smella átaksskapti á endann. því meira sem þú tekur á töginni þá klemmir hún fastar :D

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 20:47
by Danni
úff þetta er svo mikið vesen..... núna neitar aðilinn sem lofaði mér aðstöðunni að hleypa mér inn því að þetta fór bara hálfa leið í gær og hann veit að það verður vesen að ná þessum bolta úr. Jæja mín týpíska heppni.. ef það er ekki eitthvða mmc drasl að bila hjá mér þá eru einhverjir heilalausir asnar að skemma fyrir mér allt :evil: Fer bara með þetta í TB og sendi asnanum reikninginn.

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 22:33
by Kristjan
Danni wrote:Fer bara með þetta í TB og sendi asnanum reikninginn.


Held að það sé lang sniðugasta lausnin. :twisted:

PostPosted: Sat 21. Jan 2006 22:59
by Svezel
hitaðu bara helv... boltann og drekktu honum í wd40, þá ætti hann að losna með töng

maður á ekki að láta einhverja non-bmw homma eiga við bílinn sinn :lol:

PostPosted: Sun 22. Jan 2006 02:55
by Hannsi
hita what for?
Ég get losað hann með wicegrip ÁN þes að hita 8) :mrgreen:

PostPosted: Sun 22. Jan 2006 05:12
by Jónki 320i ´84
316i wrote:hita what for?
Ég get losað hann með wicegrip ÁN þes að hita 8) :mrgreen:


Og afhverju ferð þú þá ekki að hjálpa honum :wink:

PostPosted: Sun 22. Jan 2006 10:08
by Gísli Camaro
bara sjóða stuttann bolta vel á hausinn á hinum boltanum. virkar alltaf. þá ertu kominn með nýjann bolta sem toppur passar vel á