Page 1 of 1

BMW E39 523i - 1997 - Kúplingsbras ?

PostPosted: Sat 07. Jan 2006 21:52
by Angelic0-
Þetta lýsir sér þannig að þegar að ég kúpla, ekkert vesen (stíg á kúplinguna) en þegar að ég er búinn að setja í gír og sleppi kúplingunni koma svakalegir brestir og hætta um leið og kúplingin er búin að tengja alveg, kúplingin slítur og tengir eðlilega... en það brakar í einhverju :S

Einhver sem að hefur lent í þessu ?

Ábyggilega fáir sem að hafa átt beinskipta E39 :S

Dettur í hug að það sé einhver lega í gírkassanum farin..

PostPosted: Sun 08. Jan 2006 16:36
by Stefan325i
er þetta skröllt eða brestir, fékstu þér nýja kúplingu eða notaðiru gömlu. ??

PostPosted: Sun 08. Jan 2006 18:00
by Tommi Camaro
svona á þessu að dæma
brotinn kúplingsdiskur
gormur úr pressinnu dótinn úr
p.s.
var verið að brenna gúmmi ? eitthvað

PostPosted: Mon 09. Jan 2006 00:28
by Angelic0-
Stefan325i wrote:er þetta skröllt eða brestir, fékstu þér nýja kúplingu eða notaðiru gömlu. ??


Notaði gömlu, hún er einsog ný !

Tommi Camaro wrote:svona á þessu að dæma
brotinn kúplingsdiskur
gormur úr pressinnu dótinn úr
p.s.
var verið að brenna gúmmi ? eitthvað


Engir gormar í þessari kúplingu, en Pressunni :o ?

Var ekkert að brenna gúmmí, hann er búinn að vera svona síðan ég setti hann í gang !

PostPosted: Wed 11. Jan 2006 19:24
by Angelic0-
enginn sem að dettur neitt í hug ?

PostPosted: Thu 12. Jan 2006 01:15
by Hannsi
það eru gormar í kúplingunni Viktor ekki pressunni ;)

PostPosted: Thu 12. Jan 2006 08:26
by gstuning
316i wrote:það eru gormar í kúplingunni Viktor ekki pressunni ;)


Það er ekki bókað nema þú hafir séð það ,
en á t,d 2.5 vélinni hans Bjahja voru engir gormar heldur bara virkilega þungt flywheel,

PostPosted: Thu 12. Jan 2006 16:30
by Hannsi
ég man eftir gormunum enda var það ég sem hélt á henni ;)
og þótt þetta sé Twin mass flywheel þá er hún fyslétt að mínu matir!

PostPosted: Fri 13. Jan 2006 12:00
by Angelic0-
Nei Hannes, það eru ekki gormar í kúplingunni, og ef að þú sást gorma, þá er þetta vitlaus kúpling... ég hringdi inn á verkstæði hjá B&L og þar sögðu þeir mér að þessi kúpling ætti ekki að vera með gormum, hinsvegar eru "GORMAR" í swinghjólinu sem að eiga að dempa höggið þegar maður sleppir kúplingunni.. og það gæti brakað í þeim...

Hann bað mig hinsvegar að ath. hvort að kúplingin snéri rétt, því að það er hægt að setja hana öfuga í þessar pressur !