Page 1 of 1

stutt spurning

PostPosted: Fri 23. Dec 2005 13:39
by arnibjorn
Jæja þá ætla ég að koma með eina kannski frekar heimskulega spurningu en...

Ef að lítill þunnur vír slitnar í sundur er mikið mál að laga hann eða þarf bara að skipta um allan vírinn? :roll:
Málið er að ég var að kaupa mér gírhnúa með svona ljósi og það eru tveir vírar í honum sem að eiga að tengjast við kveikjarann en svo þegar að ég var eitthvað að skoða þetta þá var annar vírinn búinn að slitna :?
Hvað er best að gera? :oops:

PostPosted: Fri 23. Dec 2005 13:44
by Svezel
það er minnsta mál að lóða bara smá vír á milli og setja svo herpihólk yfir -> good as new

hef þurft að gera mikið af þessu í 750 bílnum

PostPosted: Fri 23. Dec 2005 13:49
by arnibjorn
Svezel wrote:það er minnsta mál að lóða bara smá vír á milli og setja svo herpihólk yfir -> good as new

hef þurft að gera mikið af þessu í 750 bílnum


hvað viltu fá margar kippur fyrir að kippa þessu í lag? :lol: :wink:

PostPosted: Fri 23. Dec 2005 13:51
by Djofullinn
arnibjorn wrote:
Svezel wrote:það er minnsta mál að lóða bara smá vír á milli og setja svo herpihólk yfir -> good as new

hef þurft að gera mikið af þessu í 750 bílnum


hvað viltu fá margar kippur fyrir að kippa þessu í lag? :lol: :wink:
HAHA áramótin hjá Svezel eru farin að líta soldið vel út 8)

PostPosted: Fri 23. Dec 2005 14:01
by Einarsss
þú getur farið út á næstu bensín stöð og keypt svona tengi ... kall og kellingu ... klípur þetta saman við vírinn þannig að það er contact ... og tengir þetta saman ... þetta er mjög einfalt og ódýrar heldur en bjórkippa .... ;) get hjálpað þér við þetta árni ef þú vilt

PostPosted: Fri 23. Dec 2005 14:09
by aronjarl
lóðbolti og tin afeinangra málið dautt!

tengdu þetta í ljósið í öskubakkanum ekki kveikjarann
þá ertu með dimmer á þessu og logar ekki stanslaust, kviknar á þessu þegasr þú kveikir á ljósunum.

og muna að tengja + í + og - í -
Það er díóða í þessu ig hún hefur +og - póla :wink:

PostPosted: Fri 23. Dec 2005 14:22
by Svezel
maður fær sér "þjóf" og tengir í gráan/rauðan (dimmer) og svo brúnan (jörð)

ég get hjálpað þér með þetta á sama tíma og xenon ef þú vilt :)

PostPosted: Fri 23. Dec 2005 15:41
by arnibjorn
Svezel wrote:maður fær sér "þjóf" og tengir í gráan/rauðan (dimmer) og svo brúnan (jörð)

ég get hjálpað þér með þetta á sama tíma og xenon ef þú vilt :)


Djöfull er ég sáttur með þessa þjónustu :wink: 8)

PostPosted: Thu 29. Dec 2005 00:28
by arnibjorn
Jæja svezel reyndi að gera þetta fyrir mig en var ekki með réttan "þjóf" í þetta svo að ég fór og keypti þjóf í vinnunni og hélt að ég væri með réttan þjóf í þetta en þetta virkaði ekki.. ég veit ekki hvort að ég sé að gera eitthvað vitlaust en þetta virðist vera svo einfallt eitthvað.. :roll:
Er ekki einhver rafmagsnsnillingur til í að hjálpa mér við þetta?? :oops: