bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Viftukúpling
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=13069
Page 1 of 2

Author:  Danni [ Fri 23. Dec 2005 05:33 ]
Post subject:  Viftukúpling

Ég veit, enn einn þráðurinn. En núna er ég að spá. Mér var sagt að það sé sniðugt að sjóða bara viftuna þannig að hún snýst alltaf, hvortsem kúplingin er handónýt eða ekki. Er eitthvað vit í því?

Var nefnilega að komast að því að viftukúplingin er orðinn mjög slöpp og það þarf að skipta um hana en mig langar svo í læst drif í Janúar! Þannig ef það er ekkert að því að sjóða þetta, af hverju ekki gera það?

En ef málið er bara að skipta um hana, hversu erfitt er það fyrir amatur að skipta um hana sjálfur með hjálps eins eða tveggja sem eru ágætlega vel fróðir um BMW? Var að sækja hann úr TB þar sem það var verið að skipta um bremsudiska og ég er ekki að tíma að fara þangað aftur á svona stuttum tíma!

Bíllinn er alveg orginal 525iA E34 '94 árg.

Author:  Kristjan [ Fri 23. Dec 2005 05:35 ]
Post subject: 

Ég skipti um viftukúplingu í mínum fyrir stuttu og fannst það ekkert erfitt með smá hjálp hjá gamla.

Author:  Twincam [ Fri 23. Dec 2005 05:45 ]
Post subject: 

Danni.. kauptu þér viftukúplingu... renndu við hjá mér .. og ég skal hjálpa þér við þetta frítt..

þetta er skíteinfalt og ég myndi ekki láta mér detta í hug að sjóða hana fasta.. það er bara heimska :wink:

Author:  Danni [ Fri 23. Dec 2005 05:46 ]
Post subject: 

Held að málið sé þá bara að nota Colt Getekki dolluna á rúntinn og til að skjótast að kaupa nýja viftukúplingu og redda þessu helst fyrir áramót 8)

Er eitthvað opið á morgun? (Þorláksmessu) Sé að hún kostar rétt rúmar 11þús í TB. Það er alveg viðráðanlegt verð :)

PS. Ein auka spurning, er hægt að borga inní klúbbinn núna án þess að gildir bara út þetta ár? Þá meina ég bara borga og vera kominn með meðlimakort í kringum áramót.

Author:  DiddiTa [ Fri 23. Dec 2005 11:04 ]
Post subject: 

Ég skipti um þetta sjálfur á 7unni minni, Tók mig svona korter - 20 min eftir að ég fattaði hvernig þetta virkaði :)

Og ég er alveg vonlaus í bílaviðgerðum btw ;)

Author:  íbbi_ [ Fri 23. Dec 2005 12:25 ]
Post subject: 

já það er sona sirka jafn erfitt að skipta um viftukúplingu og að drekka glas af gosi :D

Author:  Einsii [ Fri 23. Dec 2005 12:36 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
já það er sona sirka jafn erfitt að skipta um viftukúplingu og að drekka glas af gosi :D
Já Gosið rífur aðeins í :P

Author:  GunniT [ Fri 23. Dec 2005 14:43 ]
Post subject: 

mundu bara að það er öfugur skrúfgangur á kúplinguni.. :wink:

Author:  BMWRLZ [ Fri 23. Dec 2005 14:50 ]
Post subject: 

ALDREI að sjóða hana fasta, það hefur í för með sér meiri hávaða og bensíneyðslu. Bíllinn verður lengur að hitna, sérstaklega hérna heima á veturna og þ.a.l. eyðir hann meira.

Author:  Danni [ Fri 23. Dec 2005 23:19 ]
Post subject: 

Búinn að þessu. Gerði þetta samt ekki sjálfur. Alltaf þegar ég fer að vinna í bílum þá endar það með svona 4klst spjalli og 20 mín vinnu. Einsog þegar það tók mig og Viktor (Angelic0-) 12 tíma samtals að skipta um gírkassa í Colt :lol:

Author:  Danni [ Sun 26. Feb 2006 20:04 ]
Post subject: 

Bumpa þennan póst frekar en að búa til annan. En hvernig í fjandanum á maður að losa þessa viftukúplingu?? Þessi nýja sem ég fékk frá TB var greinilega gölluð því að bíllinn þarf bókstaflega að vera yfir 4000rpm til þess að ofhitna ekki!

Og þessvegna fer BMW-inn í hvíld því að TB eiga ekki aðra viftukúplingu fyrr en fyrsta lagi 3. mars. Næ í númerin af Coltinum og rúnta á 4cyl japönsku aftur :(

Author:  pallorri [ Sun 26. Feb 2006 20:33 ]
Post subject: 

Notar lykil og sleggjuhamar. Þarft bara eitt þungt högg til þess að losa viftuna.
Öfugur skrúfgangur. Passaðu bara að brjóta ekki vatnskassann :)

Author:  Hannsi [ Sun 26. Feb 2006 20:36 ]
Post subject: 

hann braut soldið annað :lol:

Author:  pallorri [ Sun 26. Feb 2006 20:40 ]
Post subject: 

Haha, hvað? :oops:

Author:  Jónki 320i ´84 [ Sun 26. Feb 2006 20:41 ]
Post subject: 

316i wrote:
hann braut soldið annað :lol:


Nú hvað?

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/