Page 1 of 1
Skipting? Program? *need answers fast*

Posted:
Tue 13. Dec 2005 23:17
by Siggi H
sælir, einsog sumir vita hérna þá var ég að gera upp skiptingu í BMW 750 og hún virðist vera í lagi fyrir utan eitt.. bíllinn vill bara vera í einum gír og það er fyrsti gírinn. allt saman er rétt sett saman og rétt tengt og ventlakerfið líka. en verkstæðiskallarnir sem vinna þar sem ég er með aðstöðuna fyrir bílinn "halda" því framm að ég þurfi að láta endurstilla eitthvað í tölvunni.. því þegar við settum í bakk og gáfum aðeins inn þá kom hann með eitthvað í mælaborðinu á þýsku sem ég held að hafi staðið "Get Program" ... vitið þið eitthvað um þetta? svo virðist einsog gamli kallinn orðaði það (pabbi) að skiptingin sé í safety mode eða eitthvað svoleiðis.. ég kalla það frekar "limp mode" hehe.
endilega svarið mér sem fyrst hvar ég gæti fengið upplýsingar um þetta og hvar ég get látið endurstilla hana ef þetta er rétt.
Kv. Sigurður

Posted:
Wed 14. Dec 2005 00:39
by saemi
Í eldri týpunum er nóg að taka allt rafmagn af bílnum yfir nótt eða svo. Veit ekki fyrir víst með þetta dæmi en það gæti gengið.

Posted:
Thu 15. Dec 2005 22:09
by Siggi H
enginn sem veit neitt meira um þetta ? hvern/hverja ég gæti hringt í til að fá info um þetta?

Posted:
Thu 15. Dec 2005 22:34
by Schulii
tjah.. kannski verkstæði B&L?

Posted:
Fri 16. Dec 2005 00:11
by Schnitzerinn
Schulii wrote:tjah.. kannski verkstæði B&L?
Uuuu, hafa þeir nokkuð verið að taka BMW-a ?


Posted:
Fri 16. Dec 2005 01:03
by saemi
saemi wrote:Í eldri týpunum er nóg að taka allt rafmagn af bílnum yfir nótt eða svo. Veit ekki fyrir víst með þetta dæmi en það gæti gengið.
Ert þú búinn að prufa þetta?

Posted:
Fri 16. Dec 2005 05:32
by Siggi H
já ég prufaði það, virkaði ekki.. hann kemur bara enþá með þetta "get program"

Posted:
Fri 16. Dec 2005 09:27
by Djofullinn
Siggi G wrote:já ég prufaði það, virkaði ekki.. hann kemur bara enþá með þetta "get program"
Hringdu í TB og talaðu við Hafþór, hann getur pottþétt sagt þér hvaða hlutir koma til greina


Posted:
Fri 16. Dec 2005 09:42
by Siggi H
já þetta er komið í ljós! ventlakerfið gæti verið að stríða þessu þar sem það datt í sundur þegar skipting var tekin í sundur.
takk annars fyrir hjálpina strákar


Posted:
Fri 16. Dec 2005 09:51
by Djofullinn
Siggi G wrote:já þetta er komið í ljós! ventlakerfið gæti verið að stríða þessu þar sem það datt í sundur þegar skipting var tekin í sundur.
takk annars fyrir hjálpina strákar

Úff þarftu þá að taka hana aftur í sundur?


Posted:
Fri 16. Dec 2005 09:52
by Siggi H
ég talaði við viðar í TB því hafþór var upptekinn, nei nei ég tek bara olíupönnuna undan og ventlakerfið undan. svo einfalt


Posted:
Fri 16. Dec 2005 09:54
by Siggi H
svarað á sama tíma já hehe