Sælir! Ég var að velta fyrir mér, ég fór með bílinn minn í ástandskoðun og það kom allt gott úr því nema að CO-innihald og HO-innihald í útblæstri voru utan viðmiðunarmarka framleiðanda s.s of hátt! CO-innihaldið mældist 7,22% (er venjulegast í kringum 1%) og HC-innihaldið mældist 700ppm. Þessar tölur eru víst alltof háar. Veit einhver hvað gæti stafað að þessu? Ég lét TB tengja bílinn við tölvu og það kom ekkert athugavert úr því. En ég veit að það er búið að taka hvafakútinn undan bílnum og það ætti augljóslega að auka mengunina eitthvað en ekki svona mikið er það? Getur verið að súrefnisskynjarinn sé farinn eða ætti það að koma í ljós þegar ég lét TB tölvutengja hann?
kv.Halli
