Page 1 of 5

Vesen á m20b25 (update, myndir)

PostPosted: Mon 05. Dec 2005 20:58
by Knud
Jæja spjallverjar ég er búinn að vera í smá veseni með bílinn.
Var að keyra um daginn á svona 3000 snúningum og allt í einu missir bíllinn afl og gengur leiðinlega. Ég tek kertaþræðina úr sambandi, einn í einu og kemst að því að hann gengur ekki á strokk 4. Jújú fyrsta sem mér datt í hug var kveikjan.

Í dag skipti ég um allt í kveikju. þar að segja kerti, kertaþræði, kveikjulok og kveikjuhamar.

Viti menn hann gengur ekki enn á þeim strokk...

Eitthverjar hugmyndir hvað gæti verið að? :cry:

Re: Vesen á m20b25

PostPosted: Mon 05. Dec 2005 21:41
by gstuning
Knud wrote:Jæja spjallverjar ég er búinn að vera í smá veseni með bílinn.
Var að keyra um daginn á svona 3000 snúningum og allt í einu missir bíllinn afl og gengur leiðinlega. Ég tek kertaþræðina úr sambandi, einn í einu og kemst að því að hann gengur ekki á strokk 4. Jújú fyrsta sem mér datt í hug var kveikjan.

Í dag skipti ég um allt í kveikju. þar að segja kerti, kertaþræði, kveikjulok og kveikjuhamar.

Viti menn hann gengur ekki enn á þeim strokk...

Eitthverjar hugmyndir hvað gæti verið að? :cry:


bilaður spíssi eða stíflaður,
prufaðu að gefa spíssanum bein 12v og hlustaði hvort að hann opnist,

PostPosted: Mon 05. Dec 2005 22:03
by zneb
Brotinn rokkerarmur??

Samt ekki líklegasti strokkurinn til að það hafi gerst.

PostPosted: Tue 06. Dec 2005 00:17
by aronjarl
spíssinn mjög sennilega stíflaður eða virkar ekki!

PostPosted: Tue 06. Dec 2005 01:25
by Hannsi
hljómar eins og þegar tveir rokker armar brotnuðu hjá mér!

PostPosted: Mon 13. Feb 2006 21:24
by Knud
Jæja ég fékk mér annan bíl og sló þessu bara upp í kæruleysi með bmw í bili og er nýbúinn að kíkja á hann aftur.

Sem sagt hann gengur ekki á strokk 4.
Þjöppumældi hann og hann virtist vera í kringum 10 pund á öllum strokkum nema strokk 4. þar var þrýstingurinn 4 pund...
jæja snillingar, hvað ætli þetta sé... ventlarnir loka ekki nógu vel?

PostPosted: Mon 13. Feb 2006 22:23
by Angelic0-
Knud wrote:Jæja ég fékk mér annan bíl og sló þessu bara upp í kæruleysi með bmw í bili og er nýbúinn að kíkja á hann aftur.

Sem sagt hann gengur ekki á strokk 4.
Þjöppumældi hann og hann virtist vera í kringum 10 pund á öllum strokkum nema strokk 4. þar var þrýstingurinn 4 pund...
jæja snillingar, hvað ætli þetta sé... ventlarnir loka ekki nógu vel?


Einsog Hannes segir... brotnir rokkerarmar ?

ég held að ég sé ekki að fara með rangt mál þegar ég segi að Hannes geti útvegað þér þá á skít og kanil :)

PostPosted: Mon 13. Feb 2006 23:51
by sh4rk
Gæti sennilega verið brunninn ventill

PostPosted: Tue 14. Feb 2006 14:47
by zneb
Opnaðu bara ventlalokið og tékkaðu hvort það sé í lagi með dæmið þar, sérð strax ef e-ð er óeðlilegt, sem hlítur að vera. Lítið mál að tékka á þessu :)

PostPosted: Tue 14. Feb 2006 15:12
by íbbi_
það ætti nú ekkert að fara framhjá þér ef rockerarmurinn brotnar, ég hef heyrt í M30 með brotin arm og glamrið færi ekki frá hjá heyrnalausu líki

PostPosted: Tue 14. Feb 2006 15:23
by Angelic0-
íbbi_ wrote:það ætti nú ekkert að fara framhjá þér ef rockerarmurinn brotnar, ég hef heyrt í M30 með brotin arm og glamrið færi ekki frá hjá heyrnalausu líki


Það kom nú ekkert glamur hjá Hannesi, bíllinn varð bara suddenly máttlaus !

PostPosted: Tue 14. Feb 2006 17:42
by Knud
Heyrðu já loksins fór maður og reif ventlalokið af og viti menn... það blasti við mér brotinn rockerarmur á útblástursventli. Tja það heyrðist ekkert þegar þetta skeði eins og angelico segjir bíllinn missti bara allan mátt...

PostPosted: Tue 14. Feb 2006 17:53
by Knud
En smá spurning, fyrst maður þarf að skipta um einn rocker arm, og einn brotnaði... borgar sig þá ekki bara að skipta um þá alla?

PostPosted: Tue 14. Feb 2006 17:53
by íbbi_
8) þetta veltur víst á hvar og hvernig hann brotnar, M30 mótoroin hljómaði eins og hrukkudýr með falskar í maraþoni

PostPosted: Tue 14. Feb 2006 17:58
by Knud
Heyrðu ég kem bara með myndir af þessu eins og þetta leit út þegar ég opnaði ventlalokið :)