Ventlaglamur

Posted:
Fri 25. Nov 2005 16:20
by 98.OKT
Sælir, er ekki einhver sem kann að ventlastilla M20 vél og getur tekið að sér að stilla vélina hjá mér fyrir einhvern aur að sjálfsögðu


Posted:
Fri 25. Nov 2005 16:57
by Alpina
,,,,,,,,einaro,,,,,,,, alger snillingur 8981082

Posted:
Sat 26. Nov 2005 02:19
by gunnar
Er ventlaglamur ekki bara aukahlutur í m20, hef aldrei keyrt m20 sem er ekki með þennan fídus


Posted:
Sat 26. Nov 2005 11:23
by 98.OKT
gunnar wrote:Er ventlaglamur ekki bara aukahlutur í m20, hef aldrei keyrt m20 sem er ekki með þennan fídus

Er það ekki bara vegna þess að allir bílarnir sem þú hefur keyrt hafa ekki verið ventlastilltir áður
Það var einhver sem sagði mér að maður þyrfti að ventlastilla þessar vélar á ca 30-40.þúsund km fresti


Posted:
Sat 26. Nov 2005 18:19
by IvanAnders
Held reyndar að glamrið hafi bara verið staðalbúnaður
talaði Stefán ekki einhvern tímann um að það þyrfti að stilla m20 á c.a. 7500km fresti?* það hentar fínt, getur gert það alltaf þegar að þú smyrð hann
*birt án ábyrgðar

Posted:
Sat 26. Nov 2005 18:44
by Einarsss
7-8 þús km fresti ... samkvæmt framleiðanda skilst mér ... ekki dýrt að gera þetta sjálfur .. þarf að kaupa feeler gauge ( 0.XX mm blöð til að stilla bil á milli hluta ) og ventlalokspakkning sem kostar rétt undir 2þús kall í bogl og tb.
Einaro ætlar að aðstoða mig við þetta í næstu viku og eftir það mun ég sennilega bara gera þetta sjálfur


Posted:
Sat 26. Nov 2005 19:01
by aronjarl
Það á að stilla þessar vélar á 10.000km fresti að ég best veit!
ég er allaveganna búinn að ventla stilla minn bíl 3 svar sjálfur
hvernig bíll er þett sem þú ert með ? 98.OKT

Posted:
Sat 26. Nov 2005 20:46
by arnibjorn
aronjarl wrote:Það á að stilla þessar vélar á 10.000km fresti að ég best veit!
ég er allaveganna búinn að ventla stilla minn bíl 3 svar sjálfur
hvernig bíll er þett sem þú ert með ? 98.OKT
Hann er á 320i 86' keyrður 234 þúsund


Posted:
Thu 01. Dec 2005 13:08
by Tasken
getið þið snillingarnir þá sagt mér hvað ventlabilið á að vera ?

Posted:
Fri 02. Dec 2005 13:41
by zneb
En hvað með m30. Hvað á að líða langt á milli og hvað á bilið að vera?

Posted:
Fri 02. Dec 2005 13:55
by Einarsss
prófaðu að google valve adjustment m30