Page 1 of 1

Tollur á drifhlutföllum

PostPosted: Mon 07. Nov 2005 19:34
by gunnar
Ég var að pæla í einu, ég er að kaupa hlutföll í millikassa út í Belgíu, þetta eru einhver 10 til 15 kílo og verðið þarna úti er einhver 60-70 þúsund.

Hvað má ég reikna með að þetta sé komið á hingað heim?

Hvað er hár tollurinn af svona dóti ?

Re: Tollur á drifhlutföllum

PostPosted: Mon 07. Nov 2005 19:48
by gstuning
gunnar wrote:Ég var að pæla í einu, ég er að kaupa hlutföll í millikassa út í Belgíu, þetta eru einhver 10 til 15 kílo og verðið þarna úti er einhver 60-70 þúsund.

Hvað má ég reikna með að þetta sé komið á hingað heim?

Hvað er hár tollurinn af svona dóti ?


Bílavarahlutir 15%
og
VSK 24,5%

PostPosted: Mon 07. Nov 2005 19:50
by gunnar
Danke schön, þannig þetta er bara 39,5% tollur ? eða já 40%

:evil:

Helvíti er þetta dýrt, liggur við að maður skelli sér út til að ná í þetta og taki einn sparkleik í leiðinni.

PostPosted: Mon 07. Nov 2005 20:01
by drolezi
gunnar wrote:Danke schön, þannig þetta er bara 39,5% tollur ? eða já 40%

:evil:

Helvíti er þetta dýrt, liggur við að maður skelli sér út til að ná í þetta og taki einn sparkleik í leiðinni.


Aðeins meira, 15% tollur og 24,5% skattur jafngildir 43,2% álagningu.

PostPosted: Mon 07. Nov 2005 20:04
by gunnar
Já ég þarf eiginlega að plata einhvern til að taka þetta bara í ferðatöskuna hjá sér, þetta er svo helvíti dýrt maður.

Tók einmitt gorma með mér til landsins þegar ég kom frá Portúgal í sumar :lol:

PostPosted: Tue 08. Nov 2005 17:28
by Freyr Gauti
drolezi wrote:
Aðeins meira, 15% tollur og 24,5% skattur jafngildir 43,2% álagningu.


ömm...ég er ekki alveg að skilja þig? 15 + 24.5 = 39.5...right?

PostPosted: Tue 08. Nov 2005 17:41
by Aron Andrew
Freyr Gauti wrote:
drolezi wrote:
Aðeins meira, 15% tollur og 24,5% skattur jafngildir 43,2% álagningu.


ömm...ég er ekki alveg að skilja þig? 15 + 24.5 = 39.5...right?


VSK reiknast af verði+toll

PostPosted: Tue 08. Nov 2005 18:11
by gstuning
t,d 100krónur komið til tolls á íslandi (Verð út með öllum öðrum kostnaði til að koma vörunni til íslands í toll)

100 x 15% = 15kr
VSK verð = 100 + 15kr = 115kr

Svo leggst á það VSK eða 24,5%

115kr x 24,5% = 28,175kr

Heildarverð = 100kr + 15kr + 28,17kr = 143,175kr

PostPosted: Wed 09. Nov 2005 11:39
by Stebbtronic
Sko.
Ef þú villt spara þér nokkra bláa að þá færðu þann sem að er að selja þér hlutinn til að búa til einhverskonar kvittun(þarf ekki að vera merkilegur miði) sem að er með uppgefið verð miklu lægra en þú borgaðir honum t.d 150 EUR eða eitthvað í þá áttina og setja þá kvittun í kassann. Svo leyfirðu tollinum að opna pakkann þegar að pakkinn kemur og það fyrsta sem þeir sjá er kvittunin. Svo þegar að þú kemur að ná í pakkann einhverju seinna að þá er tilbúinn greiðsluseðill fyrir þig þar sem að tollurinn er tekinn af þessu verði sem var uppgefið á (fals)kvittuninni. Ég hef gert þetta nokkrum sinnum og þetta klikkar aldrei. Þeas Ef að seljandinn er reiðubúinn að gera þetta fyrir þig. :wink:

PostPosted: Wed 09. Nov 2005 13:28
by gunnar
Já þetta er ekki galið hjá þér 8)