Page 1 of 1

losun pikkbarka úr skiptingu. HJÁLP.

PostPosted: Sat 05. Nov 2005 19:58
by Gísli Camaro
hvernig í anskotanaum losa ég helvítis pikkvírinn úr djöfulsins skiptingunni. þessi drulluskipting kemur úr bmw 520 eða 524d dollu.

öll ráð VEL þegin. er orðinn meira en geðveikur á þessu. næ bara akki að losa vírinn úr skiptingunni.

það hlítur bara að vera e-h einfalt trix sem ég veit ekki hvað er.

PostPosted: Sun 06. Nov 2005 03:42
by Gísli Camaro
VANTAR SVAR PLÍS. ætla í bílinn um hádegi á morgun og það væri æðislegt ef ég gæti skipt um þennann barka um það leyti

PostPosted: Sun 06. Nov 2005 03:49
by arnib
Ertu búinn að skoða þetta sjálfur ?

Þetta er alls ekki voða flókið.
Á endanum á barkanum er pinni, sem gengur inn í bolta með gati á. Boltinn er síðan hertur þannig að pinninn klemmist.
Til að losa þetta í sundur notaru tvo fasta lykla, og þá er pinninn laus.
Það getur hjálpað að losa barkann sjálfan úr festingunni sem hann er í (2x 13mm fastir) og draga síðan pinnan úr með því að hreyfa barkann.

Erfitt að útskýra þetta í orðum, en þetta skýrir sig þegar þú horfir á þetta. :)

PostPosted: Sun 06. Nov 2005 05:01
by Gísli Camaro
þú ert að tala um hinn barkann sem tengist í girskiptinguna,,, ég er að tala um barkann sem tengist við inngjöfina á vélinni. Hann er bara smelltur í og vírinn liggur lengst ofaní skiptingu.

Það er lítið mál að losa hinn barkann, ég veit það. Ég er vel fær að mér í bíla viðgerðum en í þessu dæmi er eitthvað sérstakt trix að losa vírinn uppúr skiptingunni.

PostPosted: Sun 06. Nov 2005 06:50
by saemi
Ef ég man þetta rétt, þá þarf að losa ventlaboddíið af skiptingunni til að gera þetta. Ekki gaman, en svona er þetta víst.

PostPosted: Sun 06. Nov 2005 20:08
by Gísli Camaro
OMG fuck shit. en jæja. takk kærlega fyrir uppl. sæmi

PostPosted: Tue 08. Nov 2005 13:20
by saemi
Það er ekkert meirihátar mál, þarft bara að vera vandvirkur og passa þig að kaupa RÉTTA torx boltan til að losa skrúfurnar. Færð hann hjá Wurth.