Aðvörunarljós í mælaborði: BMW 320 E36 '93

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Aðvörunarljós í mælaborði: BMW 320 E36 '93

Postby Heizzi » Thu 10. Apr 2003 18:42

BMW 320 E36 '93

Kannist þið við aðvörunarljós í mælaborðinu sem ég myndi lýsa svona:

rauður hringur með nokkrum(tveimur held ég) rauðum strikum í kringum sig...

Hvað merkir þetta?[/img]
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby bjahja » Thu 10. Apr 2003 18:48

Bremsuklossarnir, allavegana bremsuljós.
Þetta ljós var í 2 af 3 sem ég reynsluók.

Á að skella sér á hann?

Er þetta ekki hann 320i ?
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby oskard » Thu 10. Apr 2003 18:49

eretta ekki bara handbremslu ljósið þitt ? :roll: :roll: :roll: :|
oskard
 

Postby Djofullinn » Thu 10. Apr 2003 20:04

oskard wrote:eretta ekki bara handbremslu ljósið þitt ? :roll: :roll: :roll: :|

Neibb það er öðruvísi
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is
Djofullinn
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 12187
Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Location: Uppí rúmi í spandex

Postby Gunni » Thu 10. Apr 2003 20:12

þetta er ljós til að segja þér að klossarnir séu að verða eða eru búnir. Þetta ljós logar reyndar hjá mér, en það er vegna þess að skynjarinn er dáinn og það var ekki skipt um hann þegar skipt var um klossa!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby hlynurst » Thu 10. Apr 2003 21:03

Gunni: Ég þoli ekki svona ljós sem eru að lýsa í mælaborðina hjá mér!! Veit samt ekki hvort þú sért sammála en þetta er svo lítið mál að laga þetta. Skynjari kostar reyndar 1800kr. hjá B&L.
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Heizzi » Thu 10. Apr 2003 21:41

Takk fyrir aðstoðina
User avatar
Heizzi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 425
Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Location: Kópavogur

Postby morgvin » Thu 10. Apr 2003 23:04

handbremsuljós..... það gæti verið þetta er nefnilega alltaf að koma hjá mér eða þá að þetta sé skynjari.
91 E34 BMW 518i
Image
-Don't argue with stupid people they will only drag you down to their level and beat you with expirience.
User avatar
morgvin
Getawaybílstjóri
 
Posts: 521
Joined: Mon 09. Dec 2002 18:26
Location: Reykjavík(Selás)

Postby Gunni » Thu 10. Apr 2003 23:12

hlynurst wrote:Gunni: Ég þoli ekki svona ljós sem eru að lýsa í mælaborðina hjá mér!! Veit samt ekki hvort þú sért sammála en þetta er svo lítið mál að laga þetta. Skynjari kostar reyndar 1800kr. hjá B&L.


hehe mér finnst þetta svo heimilislegt :) neinei maður hefur bara enga aðstöðu til að vera að rífa dekkin af og eikkvað. Svo hef ég ekkert vit á þessu :( kannski maður reyni við þetta einhverntímann. Annars var ég að panta mér einn lista um daginn uppí b&l og ég var bara hreinlega búinn að gleyma þessu glæsilega ljósi! hefði átt að kaupa hann líka....geri það bara þegar ég sæki listann....!
Gunni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3939
Joined: Fri 30. Aug 2002 19:47
Location: London

Postby hlynurst » Fri 11. Apr 2003 00:51

Ég myndi tvímælalaust gera þetta... þegar þú ert búinn að rífa dekkið af þá er ekkert mál að skipta um þennan skynjara. Hann er hægra megin ef þú horfir framan á bílinn. Kemur þér á óvart hversu auðvelt þetta er og þér líður betur þegar þú losnar við þetta "heimilislega" ljós úr mælaborðinu. :D
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby Haffi » Fri 11. Apr 2003 02:51

Minnsta mál í heimi að skipta um þreifara... hann er hægramegin að aftan og vinstramegin að framan þarft bara að taka 1-2 dekk undan :)
Haffi W. Schnurrenberger.
User avatar
Haffi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5729
Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 6 guests