Page 1 of 1

Augnbrýr

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 14:08
by xzach
Ég er með short version af augnbrúnum sem hafa engar festingar. Á maður að líma þetta á ljósið? Er ekkert voðalega hrifin af því að líma hluti á bílinn minn. :(

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 14:19
by 98.OKT
Í svona 99% tilvika þarf að líma þetta á eða kítta.

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 14:26
by xzach
Hvaða efni væri þá best að nota?

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 14:37
by bjahja
Jámm, augabrúnir er held ég bara alltaf límdar á.
Reyndar ehfur maður séð þetta gert með frönskum rennilás (var á matta m3) en mér fannst það alls ekki vera að gera sig.

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 18:23
by Gunni
bjahja wrote:Reyndar ehfur maður séð þetta gert með frönskum rennilás (var á matta m3) en mér fannst það alls ekki vera að gera sig.


Ég er sammála því að sá franski sé ekki að gera sig alveg nógu vel.
Ég hef reyndar ekki gert þetta sjálfur, en ég held að til að þetta verði
til friðs þá væri best að finna góða límlausn. T.d. gætirðu notað svona
hita-límbyssu.

Límist þetta ekki annars bara efst á ljósin sjálf ?

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 18:44
by xzach
Mundi halda það. Langar ekki að taka þetta kannski af í framtíðinni og sjá stórar límklessur framaná.

Tékka á þessu með hitalímbyssuna.

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 18:45
by GunniT
Ekkert mál að hreinsa það af í framtíðini :wink:

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 18:53
by íbbi_
alls ekki nota hita-límbyssu, ég er búin að reyna það og önnur augabrúnin endaði útí sjó og hin uppí hillu, sikaflex er fínt í þetta, leyfðu því bara að standa og taka sig LENGI

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 19:14
by ///Matti
Reyndar ehfur maður séð þetta gert með frönskum rennilás (var á matta m3) en mér fannst það alls ekki vera að gera sig.

Jamm,franskur rennilás er ekki að gera sig :evil:
Sikaflex :D

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 21:12
by íbbi_
æjji ég veit það ekki... kannski er það bara sérviskan í mér.. en mér finnst það bara ekki vera að gera sig að festa aukahluti á með frönskum rennilás :squint: :mrgreen:

PostPosted: Tue 11. Oct 2005 22:28
by bjahja
GunniT wrote:Ekkert mál að hreinsa það af í framtíðini :wink:

Hvernig er það, er ekkert mál að heinsa svona skít í burtu?

PostPosted: Wed 12. Oct 2005 12:24
by Höfuðpaurinn
til að hreinsa lím og alla aðra drullu af gleri er best að nota gluggasköfu,
og ef það er ekki nóg, þá að hafa þynni og tusku til að ná restinni, en eftir svoleiðis meðferð þarf að þrífa þetta mjög vel með gæða efnum til að glerið verði ekki matt.