Page 1 of 1

viftukúpling

PostPosted: Mon 29. Aug 2005 21:46
by Beorn
Sá gamlan þráð þar sem var talað um hvernig ætti að skipta um viftukúplingu. Þar var sagt að maður ætti að nota lykil nr 32 eða 33 og berja á hann með hamri, til að halda hjólinu föstu þyrfti að nota skrúfjárn.

En ég sé bara ekki hvernig á að vera hægt að halda hjólinu föstu með skrúfjárni því það er enginn staður til að halda við á hjólinu.

Er einhver sem kann ráð við þessu?

PostPosted: Tue 30. Aug 2005 08:10
by jonthor
Best er að nota fastan lykil og svo skiptilykil þá nærðu utan um þetta.

PostPosted: Tue 30. Aug 2005 08:24
by Beorn
hvar á ég að setja skiptilykilinn? sé ekki neinn stað til að ná taki

PostPosted: Tue 30. Aug 2005 08:28
by oskard
á milli boltanna á hjólinu sem er fyrir aftan viftukúplinguna og svo á bakvið annað hjól fyrir neðan

PostPosted: Tue 30. Aug 2005 09:20
by Beorn
Veit hvar ég á að setja fasta lykilinn, en eruði að tala um að ég eigi að setja skiptilykil utan um rennuna sem viftureimin fer í? var of hræddur um að beygla hjólið ef ég myndi gera það.

PostPosted: Tue 30. Aug 2005 09:39
by gstuning
Settu risa röratöng á hjólið og lykill á kúplinguna, lemmdu svo fast á kúplinguna, það losar hana

PostPosted: Tue 30. Aug 2005 14:46
by Beorn
Jæja þetta er farið af, náði engu taki á þessu með röratöng. En setti skrúfjárn á tannhjólið við radiatorinn, fannst það ekki stoppa hjólið nógu vel þegar ég prófaði það í gær en núna notaði ég bara sleggju í stað hamars á lykilinn og þá losnaði þetta.

PostPosted: Tue 30. Aug 2005 16:30
by Kristjan
Beorn wrote:Jæja þetta er farið af, náði engu taki á þessu með röratöng. En setti skrúfjárn á tannhjólið við radiatorinn, fannst það ekki stoppa hjólið nógu vel þegar ég prófaði það í gær en núna notaði ég bara sleggju í stað hamars á lykilinn og þá losnaði þetta.



ER HAGGI? Sleggjan er essential verkfæri í skúrnum. Alveg ótrúlegt hvað er hægt að gera með sleggjunni.