Page 1 of 2
Dekkjapælingar 215/40 > 225/50?

Posted:
Sat 27. Aug 2005 13:41
by Kristjan
Iar gaf mér gömlu dekkin sín útaf því að mín eru orðin gjörsamlega handónýt.
Núna er ég með 215/40/ZR16 á 9 tommu að framan og aftan. Frekar stretchuð og stundum finnst mér eins og ég eigi eftir að affelga þegar ég er kannski að taka powerslide á bílnum.
Hvernig haldiði að 225/50/16 komi út á bílnum.. eru barðarnir of stórir eða er lítill munur þegar dekkin eru komin á felgurnar?

Posted:
Sat 27. Aug 2005 14:13
by Logi
Þetta er kannski aðeins of stórt... 225/45-16 myndi sleppa, veit ekki með þetta!

Posted:
Sun 28. Aug 2005 03:11
by arnib
Frekar mikill munur á hæðinni á þessum dekkjum.
Bíllinn á eftir að hækka, fendergappið að minnka (meira rubbing?)..
En það er auðvitað ómögulegt að segja nákvæmlega hver niðurstaðan
verður nema að máta undir.

Posted:
Sun 28. Aug 2005 08:24
by fart
Þetta kallar á basic dekkjaútreikninga.
fyrsta talan er breidd mynstursins í millimetrum.. t.d. 215 = 215mm breidd
næsta tala segir til um hæð á sidewall (hæð dekksins frá felgu upp í grip
t.d. /40 eða 215/40 = 215x0.4 = 86mm
225/50 verður þá 225x0.5= 225x0.5 = 112,5mm sem er mismunur upp á 26.5mm sem er SLATTI
Basically, ef þú vilt breiðari dekk þá þarftu að halda sama prófíl eða lækka hann, fara í /35.
225/40 er sennilega í lagi, sidewall upp á 90mm
225/45 = 101mm yrði hugsanlega farið að nuddast og bíllinn kanski jeppalegur
en það er 225 dekk á 9" breiðu að aftan hjá mér núna útaf driftkeppninni og það er líka streachað. 9" felga kalla eiginlega á mun breiðari dekk. Nema þú fílir streach.

Posted:
Sun 28. Aug 2005 09:02
by Logi
Miðað við að standard dekkjastærð í 15" hafi verið 205/55 (held að það sé alveg örugglega rétt). Þá er 225/45-16 mjög svipað að stærð.
Samkv. þessu forriti
http://www.miata.net/garage/tirecalc.html munar ekki nema 2,4 mm á total hæð á 205/55-15 og 225/45-16.
225/50-16 er hins vegar 24,9 mm hærra en 205/55-15!
Og svo er 215/40-16 aftur á móti 28,1 mm lægra en original 205/55-15...

Posted:
Sun 28. Aug 2005 18:07
by Kristjan
Það er í góðu lagi að bíllinn hækki aðeins.. og mig langar í smá meira ride quality... skítt með það þótt hann lúkki svolítið jeppalegur á þeim ég fæ mér 225/40 næsta sumar þegar ég geri felgurnar upp. Svo er búið að rúlla brettin þannig að þetta ætti að ganga upp.

Posted:
Sun 28. Aug 2005 18:29
by fart
þetta er soldið mikið meira en að hækka hann aðeins upp. Its probably going to look rídíkjúlus

Posted:
Sun 28. Aug 2005 18:30
by Kristjan
Gah, pirr... afturdekkin hjá mér eru komin í vírana, og ég tími ekki að kaupa mér dekk núna.

Posted:
Sun 28. Aug 2005 19:32
by fart
well, redding er redding,
...prufaðu bara.

Posted:
Sun 28. Aug 2005 19:35
by oskard
225/45 annars röbbar þetta öruglega like crasy

Posted:
Mon 29. Aug 2005 08:36
by Runkiboy
Ég er með 225x45xR17 og það er bara að fitta fínt. Þetta hefur ekki rekist upp undir ohg ekki neitt.

Posted:
Mon 29. Aug 2005 09:16
by gstuning
Runkiboy wrote:Ég er með 225x45xR17 og það er bara að fitta fínt. Þetta hefur ekki rekist upp undir ohg ekki neitt.
Þú ert líka ekki með E30 bíl sem er lækkaður
Re: Dekkjapælingar 215/40 > 225/50?

Posted:
Mon 29. Aug 2005 13:56
by bebecar
Kristjan wrote:Iar gaf mér gömlu dekkin sín útaf því að mín eru orðin gjörsamlega handónýt.
Núna er ég með 215/40/ZR16 á 9 tommu að framan og aftan. Frekar stretchuð og stundum finnst mér eins og ég eigi eftir að affelga þegar ég er kannski að taka powerslide á bílnum.
Hvernig haldiði að 225/50/16 komi út á bílnum.. eru barðarnir of stórir eða er lítill munur þegar dekkin eru komin á felgurnar?
Ég er einmitt með 215/40 16 á mínum - en þau eru svona svakalega strekkt á felguna. Hvaða felgustærð myndi passa best til að þau séu EKKI german style? Er einhversstaðar hægt að finna rétta felgustærð miðað við þessa dekkjastærð?
Og ef maður tekur breiðari felgu en 7" þarf maður þá aðra ET tölu?

Posted:
Mon 29. Aug 2005 14:41
by arnib
Já, Breidd hefur áhrif á offset..

Posted:
Mon 29. Aug 2005 15:18
by bebecar
arnib wrote:Já, Breidd hefur áhrif á offset..
Darn.. það er varla að maður nenni að pæla í þessu
Pælingin er svipuð og hjá Kristjáni (afsakaðu ránið Kristján

) en vandamálið gæti orðið eftirfarandi; ég verð að hækka bílinn um 5 cm og er kominn með 4 cm hækkun sem ég ætla að kaupa auk þess sem hann verður jafn að framan og aftan í staðinn fyrir að hafa "kýlform" en ef hann færi á 15 og á hærri prófíl dekk t.d. 195/50 15, myndi hann þá ekki lækka frá því sem hann væri á 215/40 16?