Sælir.
ÉG var rétt í þessu að reyna að ná vifukúplingu af hjá mér, á E-39 bíl með M52 mótor, en svo virðist sem ég sé ekki með nógu stóran lykil. Man einhver hversu stór boltinn er eða hvort það er eitthvað trix við að ná þesu af.
Málið er nefnilega að ég þarf að skipta um vatnsláshús, þar sem sprunga kom í það og kælivökvi sprautast út. Það virðist ekki hægt að ná vatnsláshúsinu af nema ná viftuhlífinni af og maður nær henni ekki af nema ná viftu + viftukúplingu af.
Allir pointerar vel þegnir.
Kveðja.
Þórir I.