Page 1 of 1
Smurljós

Posted:
Mon 25. Jul 2005 00:49
by Wolf
Sælir, ég lét skipta um olíu hjá mér fyrir tæplega 2000 km síðan. Þá voru smurljósin "endursett" Málið er að á þessum tæpu 2000km þá eru 4 græn ljós farin, 1 ljós þangað til hann fer á gult. Bíllinn er nær eingöngu notaður í langkeyrslu og er aldrei snúið óhóflega, hann er ekinn núna 135þús og þetta er "98 árg M43B16.....Ég bara spyr, er ekki mjög óeðlilegt að það fari 1 ljós fyrir hverja 500 ekna km? Um ræðir Esso Ultron olíu.

Posted:
Mon 25. Jul 2005 00:56
by Einsii
Er hann ekki bara snemma í að telja niður í inspection 2 sem er gert í 150þús km

Posted:
Mon 25. Jul 2005 00:57
by Eggert
Nei, það er ekki eðlilegt...

En hvað gæti verið að veit ég ekkert um.
.

Posted:
Mon 25. Jul 2005 02:17
by Wolf
Það gæti kanski haft áhrif að hann var sama og ekkert notaður í hálft ár áður en ég fékk hann? Svo eftir 500-1000km verður hann, geri ég ráð fyrir kominn með rautt smurljós, á maður að taka mark á þessu og rjúka með hann í smurningu eftir tæpa 3000 km???

Posted:
Mon 25. Jul 2005 03:02
by Eggert
Ég myndi gera það.. Sjá svo bara til hversu hratt þetta fer niður næst.