bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 03. May 2025 18:54

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 25 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Hljómtækjapælingar.
PostPosted: Wed 22. Jun 2005 15:02 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Nú hef ég spurningu til spekinganna:

Þannig er mál með vexti að E-39 bíllinn minn er ekki útbúinn Geislaspilara og ætla ég að brúa mín tónlistarvandamál með mp3 spilara, líklegast iPod mini.

Spurning mín er því þessi: Hver er reynsla manna af þessum FM sendum sem verið er að nota, eru þeir mismunandi eftir tegundum þegar kemur að gæðum? Er nokkuð auka input á standard-græjunum í E-39 bílnum?

Ég er mikið að spá í að fá mér FM sendi með innbygðu hleðslutæki til að notast við enda sýnist mér það vera penasta lausnin, hægt að færa auðveldlega til, engar snúrur að ráði o.s.frv. Hvað sýnist mönnum um þetta setup?

Kveðja
Þórir I.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 22. Jun 2005 16:16 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Fri 26. Mar 2004 09:42
Posts: 191
Æji FM er voðalega :?

Ég myndi reyna að komast inná græjurnar ef það er hægt.

_________________
Image
BMW 323i '97 montreal blau
http://sveitavargurinn.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 22. Jun 2005 16:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Posts: 3878
Location: Mosó city
Það verður áhugavert að vita hvaða lausnir menn eiga eftir að koma með hérna, ég er einmitt í sömu vandamálum með minn E39.

Fjandinn hirði kassettutækið!

_________________
E53 X5 4.4i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 22. Jun 2005 16:20 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Fri 26. Mar 2004 09:42
Posts: 191
dension icelink er það sem ég myndi nota ef ég væri með headunit sem það passaði við.
Tala nú ekki um ef ég ætti ipod ...

_________________
Image
BMW 323i '97 montreal blau
http://sveitavargurinn.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 22. Jun 2005 16:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
þú getur skoðað þetta
http://www.openbmw.org/bus/
http://autos.groups.yahoo.com/group/HackTheIBus/

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 22. Jun 2005 16:39 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 11. Jan 2005 11:01
Posts: 356
það er að sjálfsögðu bestu gæðin með beinni tengingu við bíltækið, en af eigin raun þá ætla ég ekki að kvarta undan svona fm-sendum.. ég á iPod mini og iTrip mini, og það þrælvirkar, rosalega gott signal og aldrei skruðningar, einnig höfum við vinirnir verið með venjulegan iPod og nokkrar týpur af aftermarket fm-sendum, og sá sem mér finnst sniðugastur af þeim, er þeim hæfileikum búinn að hafa digital-stillingar á tíðnisviði og getur hlaðið iPodinn. (pluggast í sígarettukveikjarann)

_________________
E36 325ia 1993 (seldur)
E34 520i 1992 (seldur)
og eitthvað af öðru dóti


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Wed 22. Jun 2005 17:11 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Posts: 3217
Location: Vesturbærinn
Image

HAHAHAH!!!

_________________
BMW E46 328i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 24. Jun 2005 08:45 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sat 15. Nov 2003 21:20
Posts: 104
Þar sem að við vinnum í 5m radíus, búum í 25m radíus frá hvor öðrum og tala nú ekki um að við eigum nákvæmlega eins bíla, af hverju byður þú mig ekki um að fá ipodinn minn lánaðan og prufar hann sjálfur?????? :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 25. Jun 2005 12:32 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
Ég er einmitt í sömu vandræðum. Bíllinn sem ég er að fá er ekki með cd og ég á iPod með iTrip, en mér finnst það aldrei virka almennilega.

Ég var að velta þessu fyrir mér með ice-link, er þetta selt á Íslandi eða þarf ég að panta þetta að utan. Og er eitthvað verkstæði hérna sem getur séð um að setja þetta í bílinn?

_________________
Siggi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 25. Jun 2005 13:47 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
ódýr þokkalegur geislaspilari kostar líklega bara svipað eða minna en ipod, svo ég mæli bara með svoleiðis :wink:

minn kostaði 15þús fyrir nokkrum mánuðum í fríhöfninni, þetta er aiwa sppilari 4x52w sem spilar mp3 og er með aux in að framan..

Þetta er kannski ekkert svakalega góður spilari, en dugar fínt og stoppar ekki í hverri holu eins og sumir ódýrir spilarar eiga það til að gera :)

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 25. Jun 2005 15:44 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Sat 16. Nov 2002 04:45
Posts: 860
Location: Reykjavík
Mér finnst samt bara snilld ef maður getur tengt iPod í bílinn! Ég á 60GB iPod sem inniheldur allt lagasafnið mitt og ekki verra að geta tekið það allt með í ferðalagið, í staðinn fyrir að vera með risastórar geisladiskamöppur :wink:

_________________
Siggi


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 25. Jun 2005 16:10 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 09. Feb 2005 21:32
Posts: 18
Er að landa í sama veseni með minn E39 bíl, ekki hægt að tengja magasín beint í tækið því þetta er ekki "buisness".
Nýtt "buisness" spilari eða kasetta kostar 100þús+ held ég.
Frekar pirrandi. Ætli þetta endi ekki í svona FM sendi eða svona iPod dæmi ef það virkar heh :?

Lindemann wrote:
ódýr þokkalegur geislaspilari kostar líklega bara svipað eða minna en ipod, svo ég mæli bara með svoleiðis :wink:

minn kostaði 15þús fyrir nokkrum mánuðum í fríhöfninni, þetta er aiwa sppilari 4x52w sem spilar mp3 og er með aux in að framan..

Þetta er kannski ekkert svakalega góður spilari, en dugar fínt og stoppar ekki í hverri holu eins og sumir ódýrir spilarar eiga það til að gera :)


Vill ekki skemma lookið inní bílnum með því að setja einhvern ramma þarna í staðinn, hef heyrt að það komi ekki vel út.
Annars hef ég ekki séð það persónulega, málið er að maður vill halda svona original looki, allavega ég :wink:

_________________
-E39 520ia svartur-


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 25. Jun 2005 20:53 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Dec 2002 22:00
Posts: 597
Location: R.vík
Lindemann wrote:
ódýr þokkalegur geislaspilari kostar líklega bara svipað eða minna en ipod, svo ég mæli bara með svoleiðis :wink:

minn kostaði 15þús fyrir nokkrum mánuðum í fríhöfninni, þetta er aiwa sppilari 4x52w sem spilar mp3 og er með aux in að framan..

Þetta er kannski ekkert svakalega góður spilari, en dugar fínt og stoppar ekki í hverri holu eins og sumir ódýrir spilarar eiga það til að gera :)


Takk fyrir ábendinguna en málið er að í E-39 er innbyggt BMW útvarp sem flestir vilja halda í, innréttingin er fallegri o.s.frv.

Annars fékk ég ipod mini + itrip lánað fyrir helgina og ég er bara nokkuð sáttur við útkomuna enda sýnist mér þetta bara vera ívið betra en útvarpsgæði. Veit að sumir eru ekki ánægðir með þetta enda eru sumir ef til vill að sækjast eftir betri hljómgæðum en ég geri að jafnaði. Svo er líka spurning hvort að bílar séu einfaldlega mismunandi.

Annars sýnist mér að það sé viturlegast að ná sér í svona FM sendi + hleðslutæki, enda virðist ipod-inn nota soldið af rafmagni þegar FM sendirinn er tengdur.

Kveðja.
Þórir I.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 26. Jun 2005 02:19 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Posts: 3217
Location: Vesturbærinn
Staðsetning iPodsins (og iTripsins) skiptir ofboðslega miklu máli.
Kannski varstu bara með svona hentugan stað.
Maður heyrir einfaldlega muninn með því að halda á iPodinum og færa
hann til og frá geislaspilaranum (eða loftnetinu..) !

Og ditto á þetta með rafmagnseyðsluna, ég held að iPod mini með iTrip fari
niður í einhverja 5-6 tíma endingu ef þetta er alltaf í notkun!

_________________
BMW E46 328i


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Thu 30. Jun 2005 09:17 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Sat 15. Nov 2003 21:20
Posts: 104
Ég hef notað Ipod+Itrip-ið í nokkrum bílum og það er ekki sama hver er. Óaðfinnanlegur hljómur í bimmanum mínum (E39), en hef prufað hann m.a í nýjum Skoda og það reyndist ekki vel.
Þetta hefur væntanlega e-ð að gera með gæði loftnets, útvarps eða e-ð þess háttar.
En það virðist engu skipta hvort ég haldi á honum, hef hann í stokknum eða læt hann bara liggja í farþegasætinu, alltaf flott sound (en ég hef reyndar ekki prufað aftursætið, enda engin tilgangur með því, ÉG keyri bílinn minn og ÉG stjórna tónlistinni :!: ).

En fyrir HP-e39 þá ER hægt að tengja magasín beint í tækið (reyndar er það tengt inná útvarpsrás). Ég er ekki heldur með Buisness græju í mínum en ég keypti Aiwa 6xmag hjá Nesradíó, sem þeir tengdu fyrir mig (og kostaði ekki hönd og fót, 40k fyrir um 2 árum). Virkar fínt fyrir mig (en tek það fram að ég er ekki e-r BÚMMBÚMM Scooter fan :puke: )

En í dag myndi ég ráðleggja fólki frekar að fara the Ipod-way ef það nær góðum hljómi og á hleðslutæki í bílinn.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 25 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 4 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group