bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hjólför & "skekkja" í stýri https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=10837 |
Page 1 of 2 |
Author: | jth [ Thu 16. Jun 2005 10:59 ] |
Post subject: | Hjólför & "skekkja" í stýri |
Ég er að berjast við eftirfarandi vandamál í '99 E46 328i bíl: 1. Hjólför. Þegar keyrt er í hjólförum kippist stýrið harkalega til, og bíllinn hreinlega hendist upp úr hjólförum. 2. Í núllstöðu leitar bíllinn til vinstri. Til að halda honum beinum þarf að stýra örfáar gráður til hægri (ca 3-4°). (Hvað veldur þessu??) Hegðunin í hjólförum er bundin við sumardekkin á bílnum: Sumar: Kumho Ecsta ###, 225/50, 7*16 Style 43 felgur. Á vetrardekkjum (Michelin Ivalo, 225/55, sömu felgur) verður maður ekki var við hjólförin, en "skekkjan" í stýringu er til staðar. Mig grunar að þessi einkenni séu tengd og hljóti að vera vísbending um vandamál í stýrisbúnaði/fjöðrun að framan. (Ég varla trúi því að breidd sumardekkja sé málið, sérstklega eftir að hafa ekið E39M5 í Reykjavík nýlega sem lætur ekki fyrir hjólförum finna). Hvað er það fyrsta sem ég á að láta skoða (fóðringar, hjólastilla, ?). Hvaða snillinga get ég ráðfært mig við (utan BL og TB) til að komast til botns í þessu? Takk fyrir hjálpina! |
Author: | oskard [ Thu 16. Jun 2005 11:08 ] |
Post subject: | |
hjólastilling væri sniðug,, þú gætir td verið með smá toe in eða out öðru megin... |
Author: | iar [ Thu 16. Jun 2005 11:19 ] |
Post subject: | |
Þú nefnir ekki ástandið á sumardekkjunum. Ef dekkin eru mjög slitin þá geta þau valdið því að bíllinn rásar í hjólförum. |
Author: | grettir [ Thu 16. Jun 2005 11:20 ] |
Post subject: | |
Eru sumardekkin orðin slitin? Minn var svona á gamalli 17 tommu (nánast reif af manni stýrið í hjólförunum), en þetta hvarf með nýjum dekkjum. |
Author: | grettir [ Thu 16. Jun 2005 11:21 ] |
Post subject: | |
Og iar var á undan ![]() |
Author: | íbbi_ [ Thu 16. Jun 2005 15:05 ] |
Post subject: | |
þegar þú ert komin á breið dekk þá kastast hann alltaf til í hjólförum, þetta er bara vegna þess að dekkin eru breiðari en hjólförin, og því situr hann ekki í þeim heldur alltaf reyna komast uppúr þeim |
Author: | jth [ Thu 16. Jun 2005 17:02 ] |
Post subject: | |
Takk fyrir ráðin strákar - gaman að sækja í sjóð vitrari manna ![]() Ég renndi við í Véla&Hjólastillingu (Auðbrekku, Kópavogi) eftir hádegi í dag, en þar var 17.júní genginn í garð. Reyni að fá þetta gert eftir helgi. Dekkin eru slitin, en þó ekki komin ofan í slitmerkingarnar (duga út sumarið nema að komi í ljós að þetta sé allt þeim að kenna). Ég kannast við aukna tilfinningu f.hjólförum sem fylgir breiðari dekkjum, fann þann mun greinilega á Dunlop SP5000(eða 9000) 225 sem hann kom á nýr vs. vetrardekkin sem eru í 205. Hann var strax örlítið verri á 225 Kumho dekkjunum - en hvernig hann lætur núna (skyndilega) er klárlega allt annað en eðlilegt. Munurinn er svo mikill að ég eiginlega trúi því ekki að einungis aukni sliti dekkjanna sé um að kenna. Svo er það þessi "skekkja" í stýrinu, þ.e.a.s. hvernig bíllinn er farinn að leita til vinstri. Það hlýtur að tengjast hjólastillingu, fjöðrun eða stýrisbúnaði. Læt kíkja á þetta eftir helgi (þetta mál er laaangt út fyrir mína DIY getu) og get vonandi upplýst hvernig náðist að leysa þetta. |
Author: | Fastcar [ Sun 19. Jun 2005 20:51 ] |
Post subject: | |
Þetta geta líka verið spyrnurnar í framhjólunum. Þegar ég átti minn e46 kom ekki ósvipað vandamál upp þegar bíllinn var einungis keyrður 26 þúsund km. Það má sjá þetta með því að tjakka hann upp og reyna að jugga framhjólunum út og inn, ef juggið er til staðar eru spyrnurnar að öllum líkindum orðnar lélegar. Ég lét skipta um spyrnurnar uppí bogl og minnir mig að þetta hafi verið einhver 50-60 kall. Bíllinn varð sem nýr eftirá. |
Author: | jth [ Sun 19. Jun 2005 21:27 ] |
Post subject: | |
Fastcar wrote: Það má sjá þetta með því að tjakka hann upp og reyna að jugga framhjólunum út og inn, ef juggið er til staðar eru spyrnurnar að öllum líkindum orðnar lélegar.
Takk fyrir góð ráð, ég læt athuga þetta. Í okkar E46 var skipt um spindilkúlur og einhverja fleiri stýrishluti í kringum 35k km, galli frá verksmiðju. Sjáum til hvort að það sé búið að taka sig upp aftur - væri mjög lélegt þar sem bíllinn er ekki nema í 58k. Takk aftur fyrir hjálpina! |
Author: | e30Fan [ Sun 19. Jun 2005 23:20 ] |
Post subject: | Re: Hjólför & "skekkja" í stýri |
jth wrote: Ég er að berjast við eftirfarandi vandamál í '99 E46 328i bíl:
1. Hjólför. Þegar keyrt er í hjólförum kippist stýrið harkalega til, og bíllinn hreinlega hendist upp úr hjólförum. 2. Í núllstöðu leitar bíllinn til vinstri. Til að halda honum beinum þarf að stýra örfáar gráður til hægri (ca 3-4°). (Hvað veldur þessu??) Hegðunin í hjólförum er bundin við sumardekkin á bílnum: Sumar: Kumho Ecsta ###, 225/50, 7*16 Style 43 felgur. Á vetrardekkjum (Michelin Ivalo, 225/55, sömu felgur) verður maður ekki var við hjólförin, en "skekkjan" í stýringu er til staðar. Mig grunar að þessi einkenni séu tengd og hljóti að vera vísbending um vandamál í stýrisbúnaði/fjöðrun að framan. (Ég varla trúi því að breidd sumardekkja sé málið, sérstklega eftir að hafa ekið E39M5 í Reykjavík nýlega sem lætur ekki fyrir hjólförum finna). Hvað er það fyrsta sem ég á að láta skoða (fóðringar, hjólastilla, ?). Hvaða snillinga get ég ráðfært mig við (utan BL og TB) til að komast til botns í þessu? Takk fyrir hjálpina! þó að e39 m5 rási ekki í hjólförum þá þýðir það ekki að bíllinn hjá þér hagi sér eins.... án þess að vita það geri ég ráð fyrir að m5-inn sé þyngri enn þinn og það eitt gæti gert muninn.. sumardekkinn hjá þér eru líka mun harðari enn vetrardekkinn og gefa þar að leiðandi ekki jafn mikið eftir og vetrardekkinn... þannig að ég myndi halda að að harðari dekkinn myndu alltaf leita miklu meira uppúr hjólförunum... |
Author: | Logi [ Mon 20. Jun 2005 14:10 ] |
Post subject: | |
Þetta hefur náttúrulega með ástand stýris/fjöðrunarbúnaðar að gera og örugglega dekkjanna einnig. Hvorki E34 M5 né E34 525i í minni eigu hafa verið að rása í hjólförum hjá mér (báðir á 235/45-17 að framan). M5 var með 17x8,5 með 13 í ofsett en 525i er með 17x8 og 20 eða 25 í ofsett. Miðað við það þá hlítur fjöðrun/stýrisbúnaður að hafa meira um þetta að segja heldur en dekkjastærðir. Til samanburðar þá átti ég E36 compact á 205/55-16 og hann skoppaði upp úr hjólförum eins og andskotinn ![]() |
Author: | jth [ Mon 20. Jun 2005 14:49 ] |
Post subject: | |
Bíllinn var hjólastilltur hjá Vélastillingu í morgun, hægra framhjól hallaði út (toe-out) um 1mm, hægra afturhjól um 2mm. Allt annað í himnalagi, ekkert hringl eða lausagangur í hjóla- eða stýrisbúnaði. Einföld og ódýr aðgerð, bíllinn er allt annar eftir þetta. Það er enn hægt að finna fyrir hjólförunum, en hann hendist ekki til eins og fyrir stillinguna. Hitt er svo annað mál að ég mun mæla með endurnýjun á 1cm mjórri sumardekkjum (ef hann verður áfram á 7*16 felgunum) því 225 er í breiðara lagi f.7" felgu (225 væri í lagi á 7,5"), á meðan að 205 ætti að vera perfect f.7" felgu. Gaman að hafa leyst þetta með jafn einfaldri aðgerð, takk fyrir góð ráð! |
Author: | Benzari [ Mon 20. Jun 2005 15:52 ] |
Post subject: | |
Þetta með dekkjastærðina er líklega stór hluti af þessum óþægindum |
Author: | srr [ Mon 20. Jun 2005 17:23 ] |
Post subject: | |
jth wrote: Bíllinn var hjólastilltur hjá Vélastillingu í morgun, hægra framhjól hallaði út (toe-out) um 1mm, hægra afturhjól um 2mm.
Allt annað í himnalagi, ekkert hringl eða lausagangur í hjóla- eða stýrisbúnaði. Einföld og ódýr aðgerð, bíllinn er allt annar eftir þetta. Það er enn hægt að finna fyrir hjólförunum, en hann hendist ekki til eins og fyrir stillinguna. Hitt er svo annað mál að ég mun mæla með endurnýjun á 1cm mjórri sumardekkjum (ef hann verður áfram á 7*16 felgunum) því 225 er í breiðara lagi f.7" felgu (225 væri í lagi á 7,5"), á meðan að 205 ætti að vera perfect f.7" felgu. Gaman að hafa leyst þetta með jafn einfaldri aðgerð, takk fyrir góð ráð! Lagaðist skekkjan í stýrinu alveg 100% ? Opelinn minn er nefnilega alveg eins og þú lýsir með stýrið, þeas hann leitar til vinstri hjá mér. Samt var hann hjólastilltur og það gerði ekki neitt :S |
Author: | jth [ Mon 20. Jun 2005 19:40 ] |
Post subject: | |
Já, skekkjan lagaðist algjörlega. Ég er því miður grænn í þessum málum og get ekkert annað ráðlagt þér en að láta skoða þetta aftur (stilla öll 4 hjól og láta fara yfir hjóla- og stýrisbúnað). Hr.Vélastilling var mjög svo almennilegur, ég samdi við hann um að hjólastilla ef hann sæi ekkert alvarlegt að - ef hann hefði séð bilun sem gæti orsakað hegðunina hefði hann hætt við og ég borgað honum einhverja aura f.skoðunina. Hvar léstu hjólastilla bílinn? |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |