Sælir
Ég hef haft talsvert mikla reynslu af tímareimum og segi bara skipta sem oftast.ég mæli með að skipta á 40.000km fresti eða á tveggja ára fresti eftir því hvort kemur fyrst.Ef maður skiptir svona oft ætti maður að vera nokkuð öruggur.
Ekki taka mark á manualnum.Hér á Íslandi eru allt aðrar aðstæður en út í evrópu en manualinn er miðaður við evrópu aðstæður.
Hér er kaldara sem hefur slæm áhrif á gúmmíið í reiminni.Einnig er oftast meira verið keyra stuttar ferðir hérna og því er oftar verið að setja vélina í gang,en lang mesta álagið er á reimina í gangsetningunni.Svo eldist gúmmíið og harðnar og verður stökkt sem eykur stórlega hættu á að reimin slitni eða tennur brotni af henni sem gerist helst við gangsetningu.
Reimategundir skipta litlu máli svo lengi sem þær eru framleiddar undir sama staðli.Reimarnar sem keyptar eru í B&L eru ekki framleiddar af BMW heldur einhverjum aðila sem vinnur fyrir þá(BOSCH?)Staðreyndin er sú að það eru sömu reimar í flestum evrópskum bílum.
Einnig verður að fylgjast með ástandi reimastrekkjara og burðar/millihjólum.Þau slitna og geta brotnað eða reimin misst strekkingu.
Afsakið langlokuna hjá mér,erfitt að hætta þegar maður er nú einu sinni byrjaður
Vona að þetta hjálpi einhverjum