Page 1 of 1
Bílasími

Posted:
Thu 12. May 2005 17:46
by Zyklus
Hvernig er það, þarf maður eitthvað sérstakt kort í bílasímana? Er það ekki bara stóra kortið? Þ.e.a.s eins og þetta hérna:


Posted:
Thu 12. May 2005 18:29
by saemi
Jú þetta, en það VERÐUR að fara í símann í skottinu. Ekki tólinu frammí.

Posted:
Thu 12. May 2005 18:53
by Zyklus
saemi wrote:Jú þetta, en það VERÐUR að fara í símann í skottinu. Ekki tólinu frammí.
Er með síma í bílnum (E34) og það virkar ekki að setja kortið í frammí eins og þú bendir á. Ég reyndi að leita að þessu í skottinu en fann ekki. Veistu hvar í skottinu þetta er? Ætti þetta ekki að vera frekar áberandi?

Posted:
Thu 12. May 2005 19:03
by saemi
Þetta er ekki áberandi.
Þú ættir að finna þetta á google, þetta er svartur kassi, eins aðeins lengri og mjórri en geisladrif og það er rauf á öðrum endanum sem þessu er stungið inn í.

Posted:
Thu 12. May 2005 19:04
by Zyklus
saemi wrote:Þetta er ekki áberandi.
Þú ættir að finna þetta á google, þetta er svartur kassi, eins aðeins lengri og mjórri en geisladrif og það er rauf á öðrum endanum sem þessu er stungið inn í.
Stóra kortinu þá? Eða litla?

Posted:
Thu 12. May 2005 21:34
by BMWaff
Veit ekki hvort ég er að miskilja.. en ég get sett sim kort í síman frammí hjá mér... og virkar... Er þá annaðúnit aftur í eða?

Posted:
Thu 12. May 2005 21:37
by saemi
Það verður að setja stórt kort í síma-júnitið aftur í skotti. Þetta er v/m í E39, það er örugglega hægt að finna betri leiðbeiningar á google

Posted:
Thu 12. May 2005 22:43
by Zyklus
Ég og fleiri erum búnir að leita út um allt skott en ekkert finnst.
Gæti þetta verið einhvers staðar undir innréttingunni í skottinu?
Er málið kannski að fara bara upp í BogL og spyrja þá um þetta? Ættu þeir ekki að vita þetta?
Það gæti verið að ég sé alveg staurblindur en ég er búinn að leita um allt en ég finn ekki neitt.

Posted:
Thu 12. May 2005 23:45
by ///Matti
Hjálpar kannski lítið en það er eitthvað unit sem líkist síma eða einhverju á bak við aftursætin hjá mér(bak við sætisbökin),sá það þegar ég tók bakið úr


Posted:
Fri 13. May 2005 00:25
by Zyklus
///Matti wrote:Hjálpar kannski lítið en það er eitthvað unit sem líkist síma eða einhverju á bak við aftursætin hjá mér(bak við sætisbökin),sá það þegar ég tók bakið úr

Ok. Eitthvað þá sem líklegt er að hægt sé að stinga SIM korti í?

Posted:
Fri 13. May 2005 00:35
by ///Matti
?Veit það nú ekki,skoðaði þetta ekki vel
Finnst þetta vera líkleg staðsetning á símanum þínum

[/quote]

Posted:
Fri 13. May 2005 00:44
by Zyklus
///Matti wrote:?Veit það nú ekki,skoðaði þetta ekki vel
Finnst þetta vera líkleg staðsetning á símanum þínum
Tékka betur á þessu á morgun.
Þakka ábendinguna.


Posted:
Fri 13. May 2005 19:16
by Zyklus
Fann þetta loksins eftir mikla leit.
Þetta var á bakvið innréttinguna í skottinu.