Page 1 of 4

95 eða 98 okt?

PostPosted: Thu 05. May 2005 21:50
by 525
Getur einhver frætt mig um hvort sé betra að nota 95 eða 98 okt bensín. Hvað eru menn hér að nota á sína eðalbifreiðar?

PostPosted: Thu 05. May 2005 22:21
by Kristjan
Ég nota oftast bara það sem stendur að eigi að nota í owners manual, eins og á 530iA notaði ég 98 oktana og blýbæti. Það virkaði fínt, hann eyddi alveg sóðalega þegar ég prófaði að setja 95 og sleppa blýbætinum í eitt skipti.

Svo heyrði ég einhversstaðar að því hærri þjappa því hærra oktan maður ætti að nota.

PostPosted: Thu 05. May 2005 22:22
by Arnar
Ég nota 95 okt bensín

PostPosted: Thu 05. May 2005 22:30
by zazou
Fer aðallega eftir þjöppunni í vélinni.

    Jaguar 12.5:1 -> 99+
    Alpina amk 98.
    MR2 er með 95 merkingu.

Samt tek ég yfirleitt VPower á flotann.

Kristján: Þurfti blýbæti??? Var ekki hvarfakútur í honum?

PostPosted: Thu 05. May 2005 22:56
by oskard
hærri oktana tala gerir ekkert fyrir þig nema að tölvan geti adjustað
við hana eða þú hafir búnað til að stilla blönduna sjálfur :)


ef bíllinn gengur vel á 95 use that

PostPosted: Thu 05. May 2005 22:59
by arnib
oskard wrote:hærri oktana tala gerir ekkert fyrir þig nema að tölvan geti adjustað
við hana eða þú hafir búnað til að stilla blönduna sjálfur :)


ef bíllinn gengur vel á 95 use that


Þú notar nú sömu blöndu sama hvaða oktan þú ert með,
en þú vilt stilla kveikjuna, þ.e.a.s. flýta henni, ef þú ert með hærri oktan tölu.

True?

PostPosted: Thu 05. May 2005 23:05
by Kristjan
Það stóð í owners manual að það ætti að nota leaded fuel. Svo var 98 með blý límmiði inní bensínlokinu. Þannig að ég hringdi í fyrri eiganda og hann sagðist alltaf hafa notað blýbæti... so why not.

PostPosted: Thu 05. May 2005 23:10
by oskard
arnib wrote:
oskard wrote:hærri oktana tala gerir ekkert fyrir þig nema að tölvan geti adjustað
við hana eða þú hafir búnað til að stilla blönduna sjálfur :)


ef bíllinn gengur vel á 95 use that


Þú notar nú sömu blöndu sama hvaða oktan þú ert með,
en þú vilt stilla kveikjuna, þ.e.a.s. flýta henni, ef þú ert með hærri oktan tölu.

True?


;)

PostPosted: Fri 06. May 2005 01:14
by Epicurean
zazou wrote:Fer aðallega eftir þjöppunni í vélinni.

    Jaguar 12.5:1 -> 99+
    Alpina amk 98.
    MR2 er með 95 merkingu.
Samt tek ég yfirleitt VPower á flotann.

Kristján: Þurfti blýbæti??? Var ekki hvarfakútur í honum?


Ég hef framan af bara tekið V-Power á M5-una annars skilst mér að Skeljungur sé að taka V-Power af markaði (þegar ófáanlegt á sumum stöðvum), gat ekki fengið það síðast og þ.a.l. tók ég 95. Eyðsla virðist eitthvað örlítið meiri samt ekkkert marktækt.
Ætli maður taki ekki bara 98 oktana framvegis.
Var Skeljungur ekki annars eina fyrirtæki sem var með 100+ oktana bensín ?

PostPosted: Fri 06. May 2005 14:28
by pallorri
Epicurean wrote:Var Skeljungur ekki annars eina fyrirtæki sem var með 100+ oktana bensín ?


Jú síðast þegar ég vissi þá var nú Shell eina stöðin með V-Power.
Var það ekki annars á einhverjum tímapunkti að það var jafndýrt og 95 okt?

PostPosted: Fri 06. May 2005 15:13
by bebecar
Epicurean wrote:
zazou wrote:Fer aðallega eftir þjöppunni í vélinni.

    Jaguar 12.5:1 -> 99+
    Alpina amk 98.
    MR2 er með 95 merkingu.
Samt tek ég yfirleitt VPower á flotann.

Kristján: Þurfti blýbæti??? Var ekki hvarfakútur í honum?


Ég hef framan af bara tekið V-Power á M5-una annars skilst mér að Skeljungur sé að taka V-Power af markaði (þegar ófáanlegt á sumum stöðvum), gat ekki fengið það síðast og þ.a.l. tók ég 95. Eyðsla virðist eitthvað örlítið meiri samt ekkkert marktækt.
Ætli maður taki ekki bara 98 oktana framvegis.
Var Skeljungur ekki annars eina fyrirtæki sem var með 100+ oktana bensín ?


Jú, mér skylst þeir séu búnir að gefast upp á að reyna að selja þetta heima eins og ég reyndar hafði búist við þar sem móttökurnar voru ekki nógu góðar og umfjöllunin frekar á neikvæðu nótunum.
V-Power er ekki heldur selt (allavega ekki hér hjá mér) í Danmörku, en augljóslega var það í boði fyrir einhverju síðan.
Þetta virðist þó hafa slegið í gegn hjá bretunum undir nafninu Optimax... ég sá meira segja auglýsingu fyrir einhvern performance bílinn um daginn og þar eru gefnar upp tvær hestafla og tog tölur miðað við 95 okt og Optimax. Á golfinum mínum eru efnar upp tvær NM tölur, 95 okt gefur 235 NM en 98 okt 240 NM.

Fæst einhversstaðar 98 oktana lengur?

PostPosted: Fri 06. May 2005 15:24
by Schnitzerinn
Ég held að Olís-dælan hjá Bílahöllinni Bíldshöfða, sé með 100+ bensíni. Það sést aðeins í hana á þessari mynd.

PostPosted: Fri 06. May 2005 15:27
by bebecar
Schnitzerinn wrote:Ég held að Olís-dælan hjá Bílahöllinni Bíldshöfða, sé með 100+ bensíni. sést aðeins í hana á þessari mynd.[/url]


En er það ekki bara flugvélabensín? Ef svo er þá er það mjög varasamt þar sem eftir því sem ég best veit þá er flugvélabensín með blýi (og ekki litlu magni í þokkabót)... sama átti við um 100+ bensínið á Dalveginum, en það var flugvélabensín.

PostPosted: Fri 06. May 2005 15:31
by Schnitzerinn
Þeir eru að nota þetta á rallý bílana hérna, ég veit ekki mikið meira um þetta :?

PostPosted: Fri 06. May 2005 15:58
by gstuning
bebecar wrote:
Schnitzerinn wrote:Ég held að Olís-dælan hjá Bílahöllinni Bíldshöfða, sé með 100+ bensíni. sést aðeins í hana á þessari mynd.[/url]


En er það ekki bara flugvélabensín? Ef svo er þá er það mjög varasamt þar sem eftir því sem ég best veit þá er flugvélabensín með blýi (og ekki litlu magni í þokkabót)... sama átti við um 100+ bensínið á Dalveginum, en það var flugvélabensín.


Hvað er svona slæmt við blý bensín?