Page 1 of 2
Dekkja og felgustærð á E30

Posted:
Mon 25. Apr 2005 12:56
by jens
Þetta hefur oft verið rætt og ég var að spá í hvað E30 crew'ð mælti með.
Er að velta fyrir mér hver munurinn á 15" og 16".
Er ekki 15" bara best upp á að halda góðum aksturseiginleikum með orginal fjöðrunarkerfi, er eitthvað fengið að fara í 16'.

Posted:
Mon 25. Apr 2005 13:00
by gstuning
Fer eftir hvað þú ætlar þér með bílinn
Ef þú vilt bara reglulega fínt drivable daily driver þá myndi ég velja "15
og þá helst "15x7,5 og með 205/55-15 dekkjum, performance fer meira eftir dekkinu sjálfu heldur en stærðinni á því
"16 fyrir look og sama með "17

Posted:
Mon 25. Apr 2005 13:22
by arnib
Ég segi 15" fyrir þægindi, og 16" fyrir fjör!
Það er svo ofboðslega mikill munur á því að keyra bíl með low-profile dekk, að það er alveg magnað!
Og þar sem ég er á móti undersized dekkjum þýðir það að maður þarf að fá sér 16"
Ef manni er sama um undersized dekk, getur maður fengið sér t.d. 205/50/15" og það er ansi gaman að keyra á því!


Posted:
Mon 25. Apr 2005 14:38
by jens
Takk fyrir þetta, hef verið á 205/50 15" á E30 bílunum sem ég átti og líkaði það vel en hvað áttu við með 16" dekkin og hvaða stærð á að nota.

Posted:
Mon 25. Apr 2005 14:42
by hlynurst
Ég er með undir mínum að framan 205/45/16 og að aftan 225/45/16 og líkar bara mjög vel. Auk þess voru 205/50/16 dýrari heldur en 205/50/16 sem ég var með undir bílnum áður.


Posted:
Mon 25. Apr 2005 14:49
by jens
Ég er að hugsa um 15x7" felgur og líst best á 205/55/15" það ætti að vera alveg nógu flott.

Posted:
Mon 25. Apr 2005 15:06
by arnib
Ég meinti nú bara að þú getur ekki verið með rétta stærð af dekkjum á 15" og verið með low-profile í einu.
Því að low-profile á 15" er ekki rétt stærð undir E30
En rétt stærð á 16" er low-profile dekk..
En ég meina,
flestir spá nú lítið í "rétta stærð", bara hvað finnst þeim flottasta þykktin á lakkrísnum.

Posted:
Mon 25. Apr 2005 16:02
by jens
Ég vissi hvað þú varst að meina og auðvita er það freistandi að vera á 50 eða 45 profil.

Posted:
Mon 25. Apr 2005 16:12
by hlynurst
Ef þú ætlar að fá skemmtilega akstureiginleika þá myndi ég skoða að fá mér 16" felgur og low profile dekk frekar en að vera með 15" og einhver jeppadekk. Þá ertu meira kominn út í það að vera með comfortable ride.... en E30 á bara að vera fun driving car að mínu mati.


Posted:
Mon 25. Apr 2005 20:59
by oskard
ég er á 205 60 15, fæ mér næst 205 50 15


Posted:
Sun 01. May 2005 21:12
by jens
Er að spá í offset á E30 hvað er það og er nokkuð sama á 4 cyl og 6 cyl, er með 15 X 7" með offset25 er það eitthvað að ganga undir 4 cyl bílinn.

Posted:
Sun 01. May 2005 22:06
by oskard
allveg sami hlutur

Posted:
Mon 02. May 2005 03:13
by jens
Hvað er offset á E30 er það eitthvað í nálægð við 25???

Posted:
Mon 02. May 2005 08:43
by gstuning
"15x7,5 felga ætti að vera ET25 já
"14x6,5 er ET38

Posted:
Mon 02. May 2005 09:25
by oskard
gstuning wrote:"15x7,5 felga ætti að vera ET25 já
"14x6,5 er ET38
15x7" á að vera et25, bmw seldi aldrei e30 á 7,5" breiðum felgum
