Vin code staðsetning í E34

Posted:
Mon 25. Apr 2005 11:54
by Bjarkih
Ég ætlaði að kíkja á VIN kóðann í bílnum hjá mér en fann hann ekki. Gáði á hvalbakinn og sá ekkert. Þarf ég að gá betur þar eða er þetta eitthvað öðruvísi á V8 eða Touring?
Re: Vin code staðsetning í E34

Posted:
Mon 25. Apr 2005 12:03
by gstuning
Bjarkih wrote:Ég ætlaði að kíkja á VIN kóðann í bílnum hjá mér en fann hann ekki. Gáði á hvalbakinn og sá ekkert. Þarf ég að gá betur þar eða er þetta eitthvað öðruvísi á V8 eða Touring?
Hvað með skráningarskírteinið
eða eigendabókina

Posted:
Mon 25. Apr 2005 17:18
by Svessi
Veit ekki hvort þú ert búinn að finna það, en það á að vera plata á hvolfi í húddinu nálægt hægra frammljósinu, semsagt farþegamegin.
Svo er bodynúmerið stimplað í bodyið, hvað á ég að segja, svarta plastið sem er fyrir neðan frammrúðuna, hjá rúðuþurkufestingunum eru tvo "göt" sitthvoru megin við hægri rúðuþurkuna, vinstra megin er eitthvað númer sem ég er ekki viss á hvaða númer er en hægra megin er bodynúmerið, þetta er dálítið skítsæll staður og getur bodynúmerið oft á tíðum verið orðið ljótt þarna á þessum stað og ílllæsanlegt.
VW var með bodynúmerið á svipuðum stað lengi vel, oft með plast ofaná sem varð of ógegnsætt með tímanum.
Vona að þetta hafi verið ágætt innlegg.
P.S. ef þið eruð að fletta uppí ekju eftir bodynúmeri þá þurfið þið bara 6 síðustu stafina í númerinu og hafið % fyrir framan! Sjálfsagt vita flestir þetta sem yfir höfuð nota ekju!