Page 1 of 1
E39 Navigation system: Garmin eða?

Posted:
Sat 23. Apr 2005 14:47
by bmw_5
Sælir,
Vitiði hvort að Navigation kerfið sem er í e39 bílnum noti þetta Garmin kerfi eða hvað?
Er hægt að fá disk í það fyrir ísland?
kv, G

Posted:
Sat 23. Apr 2005 15:27
by Porsche-Ísland
Það er ekki enn búið að hanna götukort af Íslandi.
Bílaumboðin eru eitthvað að vinna í því en það er enn einhver tími í það.

Posted:
Sat 23. Apr 2005 16:24
by fart
navigation á íslandi?
hljómar eins og sex-manual. Ef þú kann það ekki þá áttu ekki að gera það.
Fínt fyrir útlendinga, en gaman að sjá hvort að bílaleigurnar koma til með að spandera í navigation kerfi.


Posted:
Sat 23. Apr 2005 18:17
by zazou
Það var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég heyrði um þetta. En svo er mér tjáð að það verði merkt inn á þetta fjöll etc. Þá fyrst fer að vera gaman að krúsa um landið


Posted:
Sun 06. Nov 2005 21:55
by bimmer
Veit einhver um stöðuna á þessu máli - þe. navigation grunni fyrir Ísland?

Posted:
Sun 06. Nov 2005 23:14
by Daníel
Ég hugsa nú að bílaleigurnar myndu bjóða uppá svona navigation í einhverjum af dýrari flokkunum, þar sem oftast er spurt um þetta þegar verið er að panta dýra bíla.

Posted:
Mon 07. Nov 2005 00:33
by Gunni
Ég fór í leigubíl um daginn og ég gat ekki betur séð en að hann væri
með litla tölvu í glugganum hjá sér sem vísaði honum veginn!
Kannski var ég svona ölvaður, en ef þetta var rétt sjón hjá mér þá
er komið einhverskonar navi fyrir Ísland.

Posted:
Mon 07. Nov 2005 00:42
by HPH
ég veit ekki betur en það er komið tæki sem heitir VEGVÍSIR sem er með götu kort af Reykjavík.
www.vegvisir.is

Posted:
Mon 07. Nov 2005 01:08
by IvanAnders
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... s&start=15
Ég notaði leita takkann hér og fann þetta

-ýkt stolltur-
fyrir miðja síðu er eitthvað frá Reykjavík


Posted:
Mon 07. Nov 2005 01:24
by Bjarki
Það er náttúrlega rosalega mikil hagræðing og beinn sparnaður að keyra alltaf bestaðar leiðir á milli staða.
Þó menn rati vel um borgina þá getur tölva alltaf gert betur. T.d. ef menn fara á 10 staði daglega 5 daga vikunnar þá er þetta fljótt að koma.

Posted:
Mon 07. Nov 2005 07:11
by bimmer
Er eitthvað af þessum kortum að virka fyrir stock NAV kerfin í BMW?

Posted:
Mon 07. Nov 2005 09:13
by hjortur
Nei ekkert komið sem er compatible við orginal kerfin í bílunum.
http://rs.is selur kerfi sem virkar með garmin tækjum (Leigubílarnir eru margir með streetpilot tæki frá þeim)
http://vegvisir.is selur kort sem virkar í pocket pc.

Posted:
Mon 07. Nov 2005 10:01
by bebecar
Ekki rata ég í Breiðholtinu t.d.
