bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 09. May 2025 10:47

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 10 posts ] 
Author Message
 Post subject: "Moka flórinn"
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 08:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Fyrri eigandi hefur látið undir höfuð leggjast að þrífa hesthúsið á bílnum mínum en nú verður breyting þar á. 8)

Hvernig er best að þrífa þetta? Er eitthvað undraefni sem maður lætur liggja á eða bara gamli góði sámur og svo væn vatnsgusa?

Engin voða drulla, mest megnis bara ryk.

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 10:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Settu bara cellafón yfir það sem má ekki blotna (tölvuna og svona)

Tjöru hreinsi yfir allt draslið...

Og svo bara háþrýstidælu í smástund á þetta.. (alls ekki heitt vatn)

Taka svo bara back 2 black á allt plastið og þá lýtur þetta út eins og nýtt.

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 11:09 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Það er nú samt talað um að háþrýstidæla sé ekki góð á vélar, þá smýgur vatn frekar inn á óvelkomna staði.

Frekar eins og Gunnar segir með að hylja með cellofan eða jafnvel álpappír (auðveldara að móta hann) og svo frekar bursta létt þar sem þarf eftir að tjöruhreinsirinn er kominn á og nota bara létta bunu, garðúðara eða slíkt til að skola burt.

Annars þreif ég mína bara með höndunum um daginn, notaði bara lítinn svamp léttvættan í sápuvatni og svo bón á eða vínilspray eftir það. En það er auðvitað meira vesen. Ég var bara að baksa í rúðuvökvatankinum að þétta smá leka svo ég var hvort eð er að hanga yfir húddinu og bíða eftir að dropaði úr viðgerðinni. ;-)

Þetta kom nokkuð vel út:

Image

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 11:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Flottur hjá þér Ingimar.

Hvað þarf ég að hylja? Svona nýmóðinstölvutækni í bílum er nýtt fyrir mér :oops:

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 11:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Ég hef notað háþrýstidælu á alla mínar vélar, aldrei klikkað, en jú það er kannski örlítið skárra að sprauta bara tjöruhreinsi á vélina, skrúbba svo bara með bursta helvíti vel og svo skola burtu með köldu vatni..

either way.. :wink:

Ótrúlegt hvað fólk gerir þetta aldrei við bílana sína, alltaf þegar ég kaupi bíla eru hesthúsin skítug... :roll:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 12:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Posts: 6870
Location: á hjólinu
Brútus frá Sjöfn gerði kraftaverk á minni vél
Image

Ég setti bara plastpoka yfir tölvutengið og áberandi opin plögg. Úðaði svo bara vel yfir allt með Brútus, lét liggja í nokkrar mín, strauk aðeins yfir með svampi og sprautaði svo yfir allt með vatni.

Svo var bara að þurrka það mesta, setja í gang og láta bílinn ganga í nokkrar mín. Loks fór ég með back to black eða álíka vínylgljáa yfir plasið og voila

_________________
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 12:17 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Skolaði vélina með köldu, fullt af olíu og tjöruhreinsi, skrúppaði með uppþvottabursta, skolaði vel með köldu (mjög lítinn þrísting), þvoði yfir með svamp og sápuvatni, þurkaði með vaskaskinni, úðaði á hann motorplasti (verður að vera 100% þurr ef motorplastið á ekki að verða ljótt).
Svo bara tók ég annað slagið og þurkaði af, aldrei betri.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 12:36 
EKKI HÁÞRÝSTI ÞVO VÉLINA ÞÍNA !

Fáðu þér olíuhreynsi og tusku og taktu þér bara góðann tíma
í að þurka skítinn af, síðan er fínt að nota bumper care frá
autoglym á öll svörtu plastcoverin :)


Top
  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 13:49 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Posts: 9014
Location: Italia
Sammála, EKKI HÁÞRÝSTIÞVO ég hef slæma reynslu af því :?

Hinsvegar finnst mér best að vera bara eins og ingimar með lítin svamp og reyndar líka með tannburstan til að ná á milli og svona :oops:
Síðan nota ég bumber care eftir þvottin :wink:

_________________
Bjarni
www.bjahja.com


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 22. Apr 2005 14:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15128
Location: Spenge, DE
Ef þú ert með loftpressu handy þá er í lagi að háþrýsti þvo vélina, en það verður líka að vera fín pressa sem inniheldu haug af lofti, ég notaði eina svo lengi að hún ofhitnaði og slökkti á sér :P

Enda náði ég 95% af blokkinni svoleiðis

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 10 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group