bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Langar í leiðbeiningar fyrir stóru tölvuna! Og fl. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=10115 |
Page 1 of 1 |
Author: | Svessi [ Sat 16. Apr 2005 20:31 ] |
Post subject: | Langar í leiðbeiningar fyrir stóru tölvuna! Og fl. |
Daginn Heiti Sverrir, kallaður Svessi, var á rauðum Honda CRX V-tec ´91 (Ekki grindarvíkurbílnum) Sem ég lenti í að skemma fyrir jól, ætla ekkert að fara tala neitt um það, bara að einhverjir vita þá hver ég er. Var á rauðum, D. Charade sem ég kallaði Hræið á undan honum, sá bíll verður til sölu bara núna á næstu dögum ef einhvern vantar góðan og ódýrann bíl. Allavega mig langar að reyna verða dálítið virkur hérna með ykkur í klúbbnum, var að fjárfesta í BMW 535iA ´89 sem hann Heimir átti, gamli bíllinn hanns Jonna. Flottur bíll fyrir utan einhverja nokkra smáhluti sem verður gert við í sumar. Jæja, svo ég sé on topic, það er stóra tölvan í þessum bíl og ég kann ekkert á þetta dót og kann lítið sem ekkert í þýsku. Veit einhver um leiðbeiningar fyrir tölvuna bara á netinu eða eitthvað, væri auðvitað best ef þær væru á ísl-ENSKU en allt í lagi að þær séu á ensku. Því bróðir minn er líka með BMW 525iA ´92 sem hann er að gera við með félaga sínum og verður hann kominn á götuna eftir bara nokkrar vikur, hann er einnig með stóru tölvuna, væri ágætt að læra á hana alveg 100%. Svo er annað, ég fékk þessar fínu 17” með bílnum og dekkin eru 255/40-17 að aftan og 235/45-17 framan, bíllinn er 1550 kg, max pressure í afturdekkjum er skráð 51psi á dekkjunum og 45 psi á frammdekkjunum, hver á pressan að vera? Með hverju mælið þið? Svo finnst mér hann rása alveg rosalega á þessum frammdekkjum, þetta er samt rétt stærð sem gefin er upp fyrir bílinn, þau eru reyndar orðin dálítið slitin og þurfa á replacement að halda bráðlega, var að spá í hvort maður ætti þá að horfa á aðeins mjórri dekk eða aðra dekkjategund, hvað gerið þið? Felgurnar eru 8” breiðar að framan. |
Author: | arnib [ Sat 16. Apr 2005 21:01 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með bílinn! ![]() |
Author: | Höfuðpaurinn [ Sun 17. Apr 2005 16:00 ] |
Post subject: | |
til hamingju með bílinn, í sambandi við obcið (tölvuna) þá geturu bara leitað hérna á spjallinu að obc og þá kemur slatti af allskonar leiðbeiningum, t.d. til að breyta af þýsku yfir á ensku (líklegra að þú skiljir þá hvað hún er að segja) einnig geturu leitað bara á google.. að e34 obc eða eitthvað álíka.. ég var einhverntímann að spá í að upfæra obcið hjá mér og fann fullt af leiðbeiningum um að stjórna henni.. í sambandi við dekkin, þá skiptir miklu máli hvernig offsettið á felgunum er upp á það hvort þú átt að prófa mjórri dekk eða hvað.. eg er einmitt á 225/50/16 og hann á það til að narta í hjólförin, en á 215/50/16 (vetrardekkin) þá fann ég ekki fyrir hjólförunum... sorry að geta ekki hjálpað þér meira í bili, en ég er frekar nýr í þessum bmw bransa eins og þú |
Author: | Kristjan [ Sun 17. Apr 2005 17:27 ] |
Post subject: | |
Urrruuur.. ég var að vonast til að ná þessum bíl. Ah well, þá bíður maður bara eftir þeim næsta. |
Author: | Höfuðpaurinn [ Sun 17. Apr 2005 21:41 ] |
Post subject: | |
Kristjan wrote: Urrruuur.. ég var að vonast til að ná þessum bíl. Ah well, þá bíður maður bara eftir þeim næsta.
mátt alveg gera mér tilboð ef þú vilt... |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |