bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
M60 vs M62 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=1006 |
Page 1 of 1 |
Author: | iar [ Wed 12. Mar 2003 13:51 ] |
Post subject: | M60 vs M62 |
Sælir spekingar. Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér E38 bílum og á árinu 1996 var skipt úr M60 vélinni yfir í M62 (er þá aðallega að tala um 740 týpuna). Eru einhverjir hér sem vita kosti/galla á þessum vélum? Mér skilst á t.d. www.unixnerd.demon.co.uk/bmw.html að það hafi verið einhverjir gallar á eldri M60 vélum en ekki nýlegri, BMW skipti víst slatta af þessum vélum út, eitthvað tengt súlfúr í bensíni. M62 vélin er talsvert stærri að rúmtaki en með sömu hestaflatölu, torkar víst betur og á betri snúning. Samkvæmt www.parkers.co.uk eyðir M62 vélin aftur á móti mun meira en M60 svo það er spurning hvort ekki væri betra að reyna að ná sér í nýlegri M60 vél. Og þá er spurningin, hvernig er best að vita hvort í bíl sé nýrri M60 vélin eða eldri? ![]() ![]() Er það bara B&L kannski sem geta grafið þetta upp? |
Author: | GHR [ Wed 12. Mar 2003 14:09 ] |
Post subject: | |
Ég hef líka verið að fylgjast svolítið með þessu, og mér skilst að þetta sé aðeins vandamál þar sem bensínið er lélegt en við íslendingar höfum ágætis bensín þannig að blokkirnar eiga vel að þola þetta!!! En aftur á móti ef þú átt eða hefur keypt bíl með gömlu M60 blokkinni þá á umboðið að skella nýrri vél í bílinn þinn þar sem þetta er viðurkenndur framleiðslugalli og borga allan kostnað að minni vitund. Já, ég hugsa að B&L ætti að geta grafið þetta upp, en síðan er örugglega hægt að finna árgerðirnar sem gömlu M60 vélarnar voru settar í og þá veit maður þetta ![]() Þetta er rosalega spennandi umræða finnst mér, þar sem þetta vandamál var líka að hrjá E32 740 en hefur greinilega ekki verið fixað í nýrri útgáfunni sem kemur mér talsvert á óvart. Mig minnir að það geti verið allt að 10% loss af þjöppu milli cylindra, eins og líka lélegur lausagangur!!! |
Author: | Alpina [ Wed 12. Mar 2003 23:31 ] |
Post subject: | |
Þetta lýsir sér áðal-lega sem titringur í lausagangi og var helst þekkt á Bretlandseyjum og í USA og nær eingöngu í M-60 nær óþekkt í Evrópu og annars staðar,,,, betra bensín,,, |
Author: | Bjarki [ Thu 13. Mar 2003 12:18 ] |
Post subject: | |
Hérna er ágæt grein um þetta mál: http://www.koalamotorsport.com/tech/misc/v8shortblock.htm |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |