M20B25 tuning

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby O.Johnson » Sat 20. Dec 2003 01:01

Ég ætla að byrja á að tuna vélina og sjá svo til með hitt.
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby saemi » Sat 20. Dec 2003 01:40

Ég styð nú alltaf að það sé gert við gamla bíla og gert vel við þá. Og það er allt gott og blessað um það að segja þegar menn vilja taka bílinn sinn í gegn.

Það verður hins vegar að gæta þess að færast ekki of mikið í fang! Það sem mér hefur sýnst helst að klikki hjá mönnum, þegar markið er sett hátt, er að plönin breytast með tímanum. Þetta hljómar allt gott og vel núna, gera bílinn upp og hafa þetta flotta græju.

EN það er alls ekki víst að það verði sama uppi á teningnum eftir 2 ár! Þá vill kærastan fara að búa og peningaflæðið stoppar :wink: Eða pirringurinn á að hafa bílinn í frumeindum í skúrnum verður of mikill og maður nennir ekki að skrúfa meira! osfrvs.

Eða.. eins og hjá mjög mörgum, markið er sett hærra. Maður vill ekki lengur 325ix, heldur E30 M3. Kaupir sér vél á stíl díl prís og byrjar á brettaútvíkkunum. Svo vill maður setja turbo á hana. Áfram heldur dæmið, alltaf áður en maður er búinn, þá vill maður eitthvað betra.

Ég hef séð svo mörg dæmi þar sem menn eru nýbúinir að eyða formúgu í eitthvað dæmi sem kemst aldrei úr bílskúrnum (ég er sko langt frá því að vera saklaus sjálfur), af því að maður vildi fara næsta skref fyrir ofan. Þá er bara betra að bíða aðeins lengur og fara alla leið strax.

Svo ég mæli hiklaust með að koma gripnum í gang aftur, það þarf ekki að kosta nema 50.000.- kall. Gera svo allar viðbætur eftir hendinni, án þess að fara í meiriháttar rifrildi. Það er miklu öruggari aðferð. Ég myndi í mesta lagi splæsa í heitan ás ef hugurinn væri mjög ákveðinn í þessu efni. Láta hitt bíða.

Það kostar ekki nema svona 3-500.000.- kall að gera þetta að einum flottasta 325ix bíl á landinu, og þá geturðu farið í bíó fyrir afganginn 8)

Bara, ekki færast of mikið í fang í einu. Láta sig dreyma á næturna (og í vinnunni)
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby bjahja » Sat 20. Dec 2003 05:24

Mér líst mjög vel á þetta hjá þér og bara taka þér nægan tíma í þetta............hann mun verða geggjaður :D
Síðan muna að taka nógu mikið af myndum ;)
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby O.Johnson » Sat 20. Dec 2003 12:31

Ég hef nú bara þannig áráttu að ég get ekki hætt fyrr en ég er orðinn follkomlega sáttur við það
sem ég er að gera og það á sérstaklega við um eitthvað í sambandi við bíla. Ég bíst við að þetta
project muni taka allavega 4 - 5 ár því mestur tímunn mun fara í að gera þetta fullkomið.
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby oskard » Sat 20. Dec 2003 12:50

ef þú ætlar að hafa bílinn dauðann í 4-5 ár og ekki keyra hann
neitt þá áttu aldrei eftir að klára þetta....
oskard
 

Postby saemi » Sat 20. Dec 2003 12:54

Það er bara ekki til neitt sem heitir fullkomið í sambandi við bíla. Það verður að sættast á mjög gott.

Þó svo að bíllinn sé nýkominn af færibandinu eða nýuppgerður, þá er alltaf eitthvað sem er hægt að gera betur.

Það er miklu betra að sætta sig bara við að hafa bílinn geðveikan, sleppa fullkomnunni :wink:
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Postby O.Johnson » Sat 20. Dec 2003 13:05

saemi wrote:Það er miklu betra að sætta sig bara við að hafa bílinn geðveikan, sleppa fullkomnunni :wink:


ARRRG, NEI GOD DAM IT. ÉG HEIMTA FULLKOMNUN :D

Nei ég segi bara svona, gera bara mitt besta og þá er ég sáttur.
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby Svezel » Sat 20. Dec 2003 13:08

Ég segi bara gangi þér vel og þetta verður pottþétt geðveikur bíll hjá þér :D

Þú verður samt að athuga það að þetta er peningur sem þú færð líklega aldrei til baka ef þú þarft að selja bílinn svo ekki fara fram úr þér.

enn og aftur gangi þér vel
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby oskard » Sat 20. Dec 2003 13:33

vill líka benda þér á það að framdrifið þolir lítið yfir 230 hestöfl.
260hö NA brýtur framdrifið á notime
oskard
 

Postby O.Johnson » Sat 20. Dec 2003 14:56

Er þetta framdrif bara eitthvað rusl sem þolir ekki neit ?
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby oskard » Sat 20. Dec 2003 15:09

framdrifið er hugsað fyrir 170 hestöfl og sem góður vetrarbíll
ekki eitthvað trillitæki, þessvegna ákvað ég að dumpa framdrifinu
í mínum bíl seldi m20 mótorinn og keypti mér m50 :)
oskard
 

Postby O.Johnson » Sat 20. Dec 2003 15:39

Er þá hægt að fá sterkara framdrif ?
[-o< [-o< [-o< [-o< [-o< [-o< [-o< [-o< [-o< [-o<
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

Postby oskard » Sat 20. Dec 2003 16:04

BMW framleiddi veit ég læst framdrif, gæti verið að það sé
sterkara en það er svona myth skilst mér og voða lítið til :roll:
oskard
 

Postby Tommi Camaro » Thu 25. Dec 2003 21:39

er búin að fýlgjast aðeins með þessu og miða við það sem þú kannt og veist, þá veit ég að þú eigir ekki eftir að klára þetta því mér sýnist þú þurfta að kupa flest alla vinnu og hún er DÝR

p.s. Draumar eru fyrir atvinnu menn





ekkert dizz bara skoðun
523 E61 Touring
Mazda Rx7 Ekkert turbo vesen 12.060 @ 117.80
Clio 1,8 á R888 Ralycrossarinn
Hæðarstilli dekk ókeypis fyrir Reykjavik og nágrenni
Offical E30 H8R CREW
Member ONE
User avatar
Tommi Camaro
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3377
Joined: Thu 30. Jan 2003 06:08

Postby O.Johnson » Fri 26. Dec 2003 04:12

Tommi Camaro wrote:er búin að fýlgjast aðeins með þessu og miða við það sem þú kannt og veist, þá veit ég að þú eigir ekki eftir að klára þetta því mér sýnist þú þurfta að kupa flest alla vinnu og hún er DÝR

p.s. Draumar eru fyrir atvinnu menn

ekkert dizz bara skoðun


Hvað veist þú um það hvað ég kann og kann ekki :?
Ekkert diss en þú ert neikvæðasti gaur sem ég veit um...

...en það er bara mín skoðun :twisted:
O.Johnson
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 974
Joined: Tue 15. Apr 2003 00:55

PreviousNext

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests