Þekkingarleysi á diesel - málið leyst!

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby íbbi_ » Thu 06. Sep 2007 12:58

það var líka skipt um alla sensora og flr varðandi common railið í bílnum sem "burgerking" átti, ég pantaðai þetta allt fyrir ingþór ásamt spíssanum,

hannn lét þannig.. í byrjun þá gékk hann hroðalega gróft og reykti í kaldræsingu.. og varð svo í lagi þegar hann hitnaði, þá var skipt um glóðarkerti, svo byrjaði hann að hiksta og láta leiðinlega á ferð, sérstaklega ef honum var gefið,
þá var skipt um pressure sensor á railinu, og hann lagaðist ekki, þá var skipt um annan sensor á railinu, og enn lagaðist hann ekki, svo var skipt um spíssa og hann lagaðist eitthvað, svo var sett bætiefni í olíuna.. þetta var heillangt prosess..
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby ValliFudd » Thu 06. Sep 2007 15:23

íbbi_ wrote:það var líka skipt um alla sensora og flr varðandi common railið í bílnum sem "burgerking" átti, ég pantaðai þetta allt fyrir ingþór ásamt spíssanum,

hannn lét þannig.. í byrjun þá gékk hann hroðalega gróft og reykti í kaldræsingu.. og varð svo í lagi þegar hann hitnaði, þá var skipt um glóðarkerti, svo byrjaði hann að hiksta og láta leiðinlega á ferð, sérstaklega ef honum var gefið,
þá var skipt um pressure sensor á railinu, og hann lagaðist ekki, þá var skipt um annan sensor á railinu, og enn lagaðist hann ekki, svo var skipt um spíssa og hann lagaðist eitthvað, svo var sett bætiefni í olíuna.. þetta var heillangt prosess..

Svo fékk burgerking hann.. og þá átti hann að vera kominn í lag, sem hann var fyrst.. svo fór hann að láta svona aftur eftir svona 2 mán.. Svo var reyndar slanga sem lá niður að túrbínu, einhver öndun, hún var farin að slappast, lak olía þar, skipt um hana og hert á spíssum og viola.. eins og nýr loksins :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby thisman » Thu 06. Sep 2007 17:04

Hehe, greyið mun allavega passa upp á að manni leiðist ekki meðan maður á hann :wink:
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby slapi » Thu 13. Sep 2007 20:21

JonHrafn wrote:Gamli 320d minn byrjaði að vera leiðinlegur í gang kaldur, byrjaði síðan að bræla eins og hann fengi borgað fyrir það kaldur.

Ástæðan var ónýt olíuskilja. Kann nú varla að segja frá þessu, en afleiðingin var að túrbínan suckaði smurolíu og brenndi hana þess vegna brælaði hann svona.

Þetta vandamál á sér stað þegar olíuskipti hafa verið trössuð, mín reynsla er allaveganna sú.

Síðan er gott að benda mönnum á þegar þeir eru með svona vandamál er að best er að fara á eitt verkstæði með svona mál. Verkstæði sem menn treysta því annars ertu að eyða pening í að láta menn gera það sem hefur verið gert á öðrum stöðum.

Meðaðvið að tölvan sjái ekkert athugavert við hvað er að gerast er mjög líklegt að einn spíss sé að leka í þessu tilviki , Mekaníkin kemur ekki fram í tölvunni. Getur oft hreinsað sig sjálft með góðum efnum en stundum ekki.
slapi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2186
Joined: Sat 04. Jun 2005 15:43

Postby thisman » Tue 20. Nov 2007 09:21

Jæja, það er búið að leysa málið! :D

Það var semsagt skipt um spíssinn sem B&L voru búnir að dæma að væri með einhverja stæla og hann er alveg hættur að truntast í gang á morgnana - núna svona líka ljúfur og fínn! Taldi réttast að smella lausninni hingað inn ef einhver lenti í svipuðu basli.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby Bjarki » Tue 20. Nov 2007 10:51

Hvað er svona spíss að kosta? Þetta er varla gefið.....
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby thisman » Wed 21. Nov 2007 09:47

Nei, þetta er ekki gefið. B&L gáfu mér upp að verðið væri frá 110 þús krónum (spíss + vinna) en TB redduðu þessu fyrir 70 þús kall eða svo.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby JonHrafn » Thu 31. Jan 2008 22:31

Best að joina þennan 320d vesen þráð .......

Bíllinn hjá mér er leiðinlegur í lausagangi kaldur, en hann rýkur í gang þannig að mér finnst mjög ólíklegt að glóðakertin séu léleg.

Fór með hann í TB og þeir lásu af honum, Rail pressure too low, skilst að þeir hafi eitthvað fiktað í vélartölvunni til að fixa það en kann nú varla frá því að segja. Hann var góður í viku en byrjaði síðan aftur.

Ég fór með hann aftur í TB en þeir vildu ekkert gera því tölvan sagði ekkert lengur.

Núna í -10 gráðum rýkur hann í gang eins og á sólríkum degi, en ef ég sný honum í 1000revs og sleppi olíugjöfinni þá kafnar hann nánast, alveg að drepa á sér.

Ég hef googlað talsvert og þar er talað um óþétta spíssa, ónýtan MAF skynjara.

Já enn eitt ruglið, þegar ég er að hægja á mér og stend á bremsunni þá á eyðslumælirinn litli til að rjúka upp í 10l/100, spurning hvort það tengist þessu á einhvern veg, revs hækka samt ekki þótt eyðslumælirinn rjúki upp að ástæðulausu.

Spurning að hætta að væla á netinu og fara með hann í BOGL :roll:
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Postby gunnar » Thu 31. Jan 2008 23:36

Ég var orðinn asskoti spenntur að fá mér diesel bmw en eftir að hafa verið að lesa þessa bögga með þessa mótora að þá held ég að ég haldi mig bara við bensínið... Þessi "sparnaður" á milli bensín og diesel er bara ekki þess virði.
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby Dóri- » Thu 31. Jan 2008 23:48

gunnar wrote:Ég var orðinn asskoti spenntur að fá mér diesel bmw en eftir að hafa verið að lesa þessa bögga með þessa mótora að þá held ég að ég haldi mig bara við bensínið... Þessi "sparnaður" á milli bensín og diesel er bara ekki þess virði.



Held að það sé bara ekki til sá bíll sem bilar ekkert. Mín reynsla af diesel bmw er góð þó að það sé nokkuð hár viðhaldskostnaður.
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Postby burgerking » Mon 04. Feb 2008 22:30

JonHrafn wrote:Best að joina þennan 320d vesen þráð .......

Bíllinn hjá mér er leiðinlegur í lausagangi kaldur, en hann rýkur í gang þannig að mér finnst mjög ólíklegt að glóðakertin séu léleg.

Fór með hann í TB og þeir lásu af honum, Rail pressure too low, skilst að þeir hafi eitthvað fiktað í vélartölvunni til að fixa það en kann nú varla frá því að segja. Hann var góður í viku en byrjaði síðan aftur.

Ég fór með hann aftur í TB en þeir vildu ekkert gera því tölvan sagði ekkert lengur.

Núna í -10 gráðum rýkur hann í gang eins og á sólríkum degi, en ef ég sný honum í 1000revs og sleppi olíugjöfinni þá kafnar hann nánast, alveg að drepa á sér.

Ég hef googlað talsvert og þar er talað um óþétta spíssa, ónýtan MAF skynjara.

Já enn eitt ruglið, þegar ég er að hægja á mér og stend á bremsunni þá á eyðslumælirinn litli til að rjúka upp í 10l/100, spurning hvort það tengist þessu á einhvern veg, revs hækka samt ekki þótt eyðslumælirinn rjúki upp að ástæðulausu.

Spurning að hætta að væla á netinu og fara með hann í BOGL :roll:


Fékk hann til baka með lausa spíssa frá tb.. prufaðu að kíkja hvort þeir hafi hert þá hjá þér :roll:
e36 316 Touring 1998
Image
User avatar
burgerking
Getawaybílstjóri
 
Posts: 868
Joined: Sat 04. Mar 2006 18:24
Location: Kópavogur

Postby xtract- » Tue 05. Feb 2008 03:01

þegar þú bremsar ferður hægar yfir, þar af leiðandi ertu lengur að keyra 100km, þessvegna ætti eyðslumælirinn að hækka..
xtract-
Getawaybílstjóri
 
Posts: 844
Joined: Wed 25. Oct 2006 15:42
Location: Akureyri

Postby thisman » Wed 20. Feb 2008 09:33

Tók allt í einu eftir að þessi þráður hefði lifnað við eftir að ég skildi við hann síðast.

Ég myndi fara með hann í bilanagreiningu hjá B&L. Það kostaði jú einhversstaðar í kringum 10 þús kallinn en þeir gátu líka fundið út úr vandamálinu og þá geturðu farið annað með hann ef þú vilt fá ódýrari viðgerð. Held það margborgi sig umfram að fara með hann hingað og þangað og láta gera við út í loftið eitthvað sem gæti hugsanlega mögulega kannski virkað en þó líklega ekki.

Minn rauk einmitt alltaf í gang án nokkurra vandræða. Hann var bara truntulegur - dálítið eins og hann væri að kafna - fyrstu mínúturnar. Nú þekki ég ekki hvort það er sama hegðun þegar um er að ræða hálfstíflaðan spíss (eins og í mínu tilfelli) eða óþéttan spíss. Ef þetta gildir ekki þegar hann er kaldur hjá þér heldur alltaf þá er hann kannski óþéttur? Þekking mín undir húddinu er hinsvegar afar takmörkuð þannig þetta eru bara vangaveltur. :)

Gunnar: Ég myndi ekki gefa díselinn alveg upp á bátinn. Þetta eru alveg ótrúlega skemmtilegar vélar sem eyða akkurat engu á sama tíma og þær eru merkilega sprækar. Einnig er ég alltaf jafn hissa hvað hann er í raun hljóðlátur þegar ég sest upp í bensínbíla sem heyrist miklu meira í. Fyrir utan þetta eina atvik (sem var btw greitt af fyrri eiganda eftir smá karp) hefur bíllinn hjá mér gengið eins og klukka og hann hreyfir til að mynda ekki við vélarolíunni. Mig grunar satt best að segja að hann hafi staðið of lengi áður en ég keypti hann með olíu í eldri kantinum og það hafi ollið óhreinindum sem hafi ratað í spíssinn. Galdurinn er bara að hugsa vel um þetta og þá ætti þetta að vera nokkuð sársaukalaust.
thisman
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 367
Joined: Tue 06. Mar 2007 15:01

Postby Kull » Wed 20. Feb 2008 10:58

Ég er nú búinn að eiga minn á þriðja ár og ég get ekki sagt að það sé neitt hærri viðhaldskostnaður á dísel en bensín. Allavega hef ég ekki þurft að eyða neitt meira í bílinn en eðlilegt, bara þessir venjulegu slithlutir.
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!
User avatar
Kull
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1505
Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Location: Seltjarnarnes

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 20 guests