Felgur undir M5

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby Stanky » Wed 27. Sep 2006 13:34

IceDev wrote:MAÐUR ER STYTTRA Á MALBIKINU EF MAÐUR KEYRIR HRATT ÞANNIG EF EITTHVAÐ ER ÞÁ FER ÞAÐ BETUR MEÐ VEGINA!!!!111oneoneone

:lol: :lol: :lol:



lol... :D:D
Stanky
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2026
Joined: Tue 13. Jul 2004 18:51

Postby Fjarki » Wed 27. Sep 2006 19:13

Þessi för koma útaf:

allir íslendingar keyra í sömu förunum,
útaf nöglum,
og aðallega út af þungum bifreiðum.

Sjáum það best á hraðahindrunum þar sem strætó keyrir, efast um að naglar eigi einhvern þátt í því.

Þetta sést einnig þegar malbikað er, reyndar alltaf seint á haustin en þegar það gerist að vori, þá líða ekki nema svona 3 mánuðir, þá eru byrjuð að myndast för.

Naglar hvað!!
Kristján
Fjarki
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 300
Joined: Thu 11. Mar 2004 15:51

Postby bjahja » Wed 27. Sep 2006 19:19

Það er ekki hægt að mótmæla því að naglar spæni upp malbikið. Ég meina kommon þetta eru 1-2 tonna hlunkar að rúlla á málmgöddum :lol:
Síðan sér maður það á veturna þegar það er ekki snjór (er einhverntímann snjór í RVK???) og logn hvað það myndist mikið ryk af þessu.
Síðan hafa kannanir verið að sýna að nagladekk eru bara betri í glerhálku og þá bara á meðan þau eru glæný. Annars eru naglalaus vetrardekk betri
bjahja
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 9014
Joined: Sat 28. Dec 2002 19:49
Location: Italia

Postby ValliFudd » Wed 27. Sep 2006 20:36

bjahja wrote:Það er ekki hægt að mótmæla því að naglar spæni upp malbikið. Ég meina kommon þetta eru 1-2 tonna hlunkar að rúlla á málmgöddum :lol:
Síðan sér maður það á veturna þegar það er ekki snjór (er einhverntímann snjór í RVK???) og logn hvað það myndist mikið ryk af þessu.
Síðan hafa kannanir verið að sýna að nagladekk eru bara betri í glerhálku og þá bara á meðan þau eru glæný. Annars eru naglalaus vetrardekk betri

Ég er ekki fyrir nagla... ég hef verið á bæði nagladekkjum og naglalausum og var sáttari við naglalausu dekkin.
* Fannst alls ekki meira grip í nöglunum...
* Helvítis hávaði og veghljóð frá þessu dóti
* Það er hálka kannski í c.a. viku í mesta lagi í rvk.. so why bother? Ekki hávaðans virði að mínu mati :) En hver má hafa sína skoðun :)
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Postby snorri320 » Wed 27. Sep 2006 21:16

naglarnir gefa bara meira grip á blautu svelli, annars eru hin dekkin alltaf betri og þeir (þ.e. naglarnir)gera jafnmikið gagn í snjó og sumardekk svo hér á höfuðborgarsvæðinu er ekkert vit í því að vera á nöglum.
BMW e36 320i

Massey Ferguson 550
User avatar
snorri320
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 66
Joined: Tue 15. Mar 2005 17:36

Postby e_b » Sat 30. Sep 2006 00:47

Jæja, skellti mér upp í B&L í dag til að sækja M merki aftan á bílinn og ákvað að spjalla við þá um felgur í leiðinni.

Þeir eiga til einhverjar orginal BMW felgur sem kallast Spoke 66 (líta eins út og þessar sem bimmer var á), og er stykkjaverðið 56 þús kr. M.v. verð á góðum vetrardekkjum (t.d. þessum Dunlop M3 dekkjum) þá yrði heildarkostnaður við vetrarskó á bílinn um 300 þús kr.!

Finnst það ansi mikið.

Þeir eiga hinsvegar einhverjar replicu felgur sem eru mun ódýrari. Er eitthvað varið í replicur, eða ætti maður bara að vera orginal? Hvað ætti ég annars að gera ráð fyrir að felgur + dekk kosti mig (svona ballpark upphæð svo ég hafi eitthvað að miða við)?

Önnur spurning. Lækkar bíllinn við að setja minni felgur undir hann (og þá með 235/45x17 dekkjum)? Bíllinn má nefnilega helst ekki lækka um 1 millimeter (eins og er þá rétt svo sleppur hann inn í bílageymsluna hjá mér).

Með þakkir fyrir góðar ábendingar hingað til.


Kv.
E_B
e_b
Kassabílstjóri
 
Posts: 107
Joined: Fri 17. Feb 2006 18:14

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 17 guests