Ég myndi láta sprauta lista og nýru.
Massa lakk og sprauta það sem þarf.
Skipta um fóðringar, slithluti og jafnvel setja undir góða fjöðrun.
Láta laga felgur (eða kaupa aðrar)
Þegar þetta er allt orðið snyrtilegt og flott þá getur þú athugað með Túrbó, Vélarskipti eða annað. Þá myndi ég þó benda þér á það að gera það að vel athuguðu máli og því meira sem þú getur gert sjálfur því betra.
Farðu bara varlega með allar breytingar. Það er ótrúlega auðvelt að gera bíla forljóta með nokkrum vel völdum viðbjóði. (ristar á bretti, ljótir speglar, crystal ljós (ekki á E34) og annað í þeim dúr)

