Geta bremsudiskar orsakað titring í akstri?

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Postby íbbi_ » Tue 10. Oct 2006 23:40

diskar eru nú eins helsta orsök titrings, athugaðu líka nafið, ef það er ekki annahvort þessa þá er þetta lengra undir,
þegar ég fékk benzann minn þá lét hann sona. titraði alltaf í 80, skipti um felgur, lagaðist ekki, keypti þá diska og þegar ég setti þá í sá ég að það var nafið sem var ónýtt, skipti diskana klossa og nöfin og bíllin varð eins og nýr
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Jonni s » Wed 11. Oct 2006 08:13

Rear subframe bushings eða stólpúðafóðringar eins og sumir vilja nefna þetta. Það var orsökin á rosalegum titringi akkúrat á 80-90 kmh á gamla 535 e34 sem ég átti. Titringurinn átti það til að koma líka ef það var ekið yfir margar ójöfnur með stuttu millibili eins og td samskeitin á Borgarnesbrúnni eða þessar asnalegu hraðalínur sem liggja þvert yfir annan vegarhelming á sumum stöðum. Þá virkaði ekkert nema bremsa bílinn niður fyrir 70 til að þetta hætti.

Vona að þetta hjálpi.
Þetta er bara blær, blíður og vær.
Jonni s
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 354
Joined: Thu 26. Feb 2004 11:19
Location: Skagaströnd

Postby Danni » Wed 11. Oct 2006 09:34

Jonni s wrote:Rear subframe bushings eða stólpúðafóðringar eins og sumir vilja nefna þetta. Það var orsökin á rosalegum titringi akkúrat á 80-90 kmh á gamla 535 e34 sem ég átti. Titringurinn átti það til að koma líka ef það var ekið yfir margar ójöfnur með stuttu millibili eins og td samskeitin á Borgarnesbrúnni eða þessar asnalegu hraðalínur sem liggja þvert yfir annan vegarhelming á sumum stöðum. Þá virkaði ekkert nema bremsa bílinn niður fyrir 70 til að þetta hætti.

Vona að þetta hjálpi.


Þetta gæti alveg útskýrt titringinn að aftan þar sem fyrrverandi eiganda tókst nú að taka svo harkalega á honum að drifið fór! En ég vona að þetta sé ekki málið því ég held að þétta sé frekar dýr aðgerð!
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Previous

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 21 guests