by JOGA » Wed 30. Aug 2006 20:09
Geirinn wrote:JOGA wrote:Takk fyrir þetta. Þú fórst til BJB er það ekki? Og þurftir að bíða í dágóðan tíma ??
En ef Einar kemur með of hátt tilboð þá fer ég til BJB og nefni þinn bíl. Æðislegt að hafa svona viðmiðun.
BJB. 2mán slétt.
Jæja. Ég fór með bílinn til Einars í gærkvöldi. Hann kom heim frá útlöndum í dag og hringdi í mig. Gerði mér tilboð upp á ca. 40 þús. Ég sagði honum frá verðinu sem stæði til boða hjá BJB og úr varð að hann náði í varahluti þangað, og setti undir hjá sér. Bíllinn er núna tilbúinn og ég á að greiða 26þús fyrir.
Ég sæki bílinn á morgun og vona að hann hljómi vel. Hann vildi nú samt meina að ég fengi fallegra hljóð með kerfi smíðuðu af honum.
En ég er vel sáttur við þjónustuna. Beið innan við 24 tíma...
Það er vel þess virði að borga 3þús aukalega fyrir það.
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir