já......þetta var ömuleg lífsreynsla þar sem ég hef aldrei eyðilagt fallegan bíl áður en bílinn skautaði yfir veginn og lenti á nýjum hilux.
en bílinn er þannig að ég er svona alveg viðþað að rífa hann.....mælaborðið í heild sinni er eins og öfugt vaff uppávið,hurðin gekk alveg þvílikt inn og sílsinn alveg í rusli,framendinn gekk allur til um 5-7cm,rúður brotnuðu og afturbrettið ásamt afturhurð skemmdist mikið.
já og gólfið gekk allt upp
síðan skemmdist hjá vélinni en kveikjan brotnaði,carburatorinn skemmdist ,skiptingin heldur ekki í P-inu og hitt og þetta.
en þetta vildi allt svo til að það var ný búið að loka veginum og að mínu mati með lélegu merki sem ég sá of seint og snarnelgdi niður og þá snérist hann og fór sem fór.
ég veit ekki hvað ég á að segja..þetta var ekki beinlínist það sem ég hafði ætlað bílnum í upphafi
ég er bara VERULEGA þakklátur fyrir það að hafa verið einn í bílnum og að bílinn hafi snúist eins og gerði því að ef ég hefði verið með farþega þá væri hann ekki í lagi í dag, enda myndi ég aldrei fyrirgefa mér fyrir að valda öðrum skaða á þennan máta.ég sjálfur er að drepast allstaðar,óbrotinn,bólginn og sár.
en ég er að gera upp hug minn um hvað ég geri við bílinn en mig langar virkilega ekki að rífa hann þó að þessir bílar hafa nú verið rifnir fyrir
mikið minna,og ef ég laga bílinn þá verður það tímafrekt og dýrt,mikil réttingavinna og mikil sprautun ásamt viðgerðum þannig við erum að tala um 1-2 ár.
kv.BMW_Owner