En það sem ég er að pæla í er, hvort ég eigi bara að láta fjarlægja hvarfana og setja túbur í staðinn eða hvort maður eigi að fara í complett smíði á kerfi undir bílinn ?
Þetta er auðvitað bara orginal E30 320/325 kerfið sem er tvöfalt alla leið. Soðið saman við pústgreinarnar á M52 mótornum.
Græði ég eitthvað á sverara pústi ? Vill orginal endakútinn, hann er alveg heill og engin ástæða til að að skipta honum út.
Það má alveg heyrast aðeins í bílnum, ég nota hann nú ekki svo mikið að það megi ekki heyrast aðeins í þessu, en ég vill ekkert sound eins og í 335 Cannon Edition hjá Árna
Hvað finnst ykkur að maður ætti að gera í stöðunni?



