by O.Johnson » Tue 21. Oct 2003 13:15
Á fimmtudaginn fékk vinur minn að prófa bílinn og við fórum upp á planið
hjá húsgagnahöllinni. Hann kendi mér fult af trixum sem gaman (var) að gera
T.d að vera í fyrsta gír og í 4000 snúningum, keyra í stórn hring, ýta á kúplinguna,
bensínið í botn, sleppa kúplingunni, og um leið og hann byrjar að spóla, skipta
strax í annan og bensínið í botn. VVÁÁÁÁÁÁ hvað hann spólar mikið og slætar.
Voða gaman. Síðan á sunnudaginn þá var maður á leiðinni í bíó og kom við í
Húsgagnshöllinni, blaut úti. Langaði aðeins að sýna félaganum sem er mikill anti-bmw
maður, hvers konar tæki þetta væri. Tók tvö powerslæt og ætlaði að fara síðan.
að fara að koma mér í bíóið. Var hættur öllu spóli og var á leiðinni út af planinnu
og var bara í þriðja á svona 40 km/h, beyji smá og kling ping klang, og vélinn þagnar.
Mín hugmynd er að annað framhjólið hafi bara verið í spóli en hitt ekki, en við það
verður gífurlegt álag á mismunadrifið. Það hitnar mjög mikið og þegar það
kólnar getur það gróið fast og verður eins og 100% læst drif, sem gerir það að
verkum að þegar beygt er þá myndast svo mikið álag á drifið að það einfaldlega
splundrast.