Ég finn ekki odb II tengið í e39 bíl 06/2000. Veit einhver hvar það er að finna. Ég notaði bara tengið í húddinu en vil gjarnan finna hitt, þægilegra þegar maður er að keyra og lesa rauntímaupplýsingar.
Hefur einhver reynslu af því hvort sú diesel olía sem seld er hér á íslandi sé lakari en sú olía er seld er erlendis. Lakari eða öðruvísi?
Keypti 530d fyrir foreldra mína núna úti, hef ekið bílnum rúma 5þkm á seinustu 2 vikum án vandræða en núna þegar ég er kominn til Íslands og er búinn með 1,5 tank þá gengur bíllinn leiðinlegan lausagang, engar villur koma fram og öll gildi eru eðlileg.
Í þýskalandi þá getur maður keypt venjulegt diesel og svo super/ultra diesel, er ekkert svoleiðis hér?


