sælir félagar..
núna er ég með bílinn niðrá verkstæði að ditta að einu og öðru, en aðalvandamálið er víbringur sem er í bílnum. hann lýsir sér þannig að allur bíllinn hristist! mesti víbringurinn er í kringum 2000rpm, ég er búinn að prufa að þenja bílinn stopp líka og það er það sama.. enþá víbringur! svo steig ég á kúplinguna og þandi bílinn og það var enþá það sama. maður finnur mjög vel fyrir þessum víbring..
svoldið erfitt að greina hvaðan hann kemur en manni finnst einsog hann komi undan bílnum, þetta eru víst ekki gírkassapúðarnir því það var búið að skipta um þá.. og mjög ólíklegt að þetta tengist drifinu eitthvað þar sem víbringurinn er til staðar þó bíllinn standi kyrr og er þaninn.. einnig ekki um gírkassann að ræða held ég þar sem ég er búinn að prufa að standa á kúplingunni einsog ég sagði!
mig sjálfum grunar.. að þetta gæti verið mótorpúði? en hefði nú haldið að maður mætti nú alveg búast við meiri víbring ef að mótorpúði væri farinn.
það sem mig vantar er upplýsingar og svona smá leiðsögn um það hvað ég ætti að skoða helst sem gæti valdið þessu??
vinur minn sem er bifvélavirki "heldur" að þetta gæti eitthvað tengst mótornum sjálfum sem hristir allan bílinn..
endilega þeir sem hafa lent í þessu eða kannist við eitthvað sem fittar við lýsinguna hérna koma með góð ráð handa mér.
Takk Takk


