Hann fór til TB þar sem þeir skiptu um glóðarkerti en það hafði ekkert að segja. Hann fór einnig með hann í álestur til B&L og tölvan hjá þeim finnur ekkert að bílnum. Þeir mæltu með því að setja hreinsivökva út í díselolíuna og sjá hvort að það hafði eitthvað að segja.
Hann hefur nú verið á slíkri blöndu í nokkra daga en það er allavega ekki enn farið að skila árangri. Dettur einhverjum eitthvað í hug sem vert væri að skoða?
Nú hef ég ekki áður átt díselbíl en mig minnir einhvernveginn að á öðrum slíkum bílum sem ég hef keyrt þá hafi maður þurft að halda við lykilinn meðan gormurinn logaði í mælaborðinu og bíða eftir að hann slokknaði. Í þessum bíl þá kviknar á gorminum í sekúndu eða svo þegar maður setur rafmagnið á bílinn en síðan slokknar það á sama tíma og önnur ljós í mælaborðinu. Þegar maður snýr svo lyklinum lengra til að svissa á þá logar þetta ljós aldrei - á hvaða tímapunkti fer hann að hita upp olíuna? Er það þegar maður setur rafmagnið á bílinn eða er það þegar maður snýr lyklinum til að starta vélinni?
Verst að bæklingurinn með bílnum er á algjörlega óskiljanlegu tungumáli fyrir mig

