Svona líta þær flestar út í dag þ.a. ég þarf að láta glerblása og húða/sprauta þær allar
Einnig er önnur afturfelgan bogin og því þarf að rétta hana.
Planið er að fara með þessa einu í réttingu á morgun til annaðhvort Magnúsar(felgur.is) eða Áliðjuna, svo með þær allar í glerblástur til Sandblásturs HK í Hafnarfirði og loks í polyhúðun(powdercoating) til Ofnasmiðjunnar.
Þá ættu þær allar að vera eins og nýjar
Svo er bara að taka nóg af myndum af aðgerðinni og sýna afraksturinn hér á spjallinu
http://bmwkraftur.pjus.is/myndasafn/svezel_Felgur


